Um fimmleytið í morgun var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað til vegna elds sem komið hafði upp í bíl á Reykjanesbrautinni á móti Vífilstöðum.
Mbl greindi frá í morgun. Þar segir að sögn varðstjóra slökkviliðsins hafi bíllinn verið á ferð þegar glóð kom upp í bílnum og reykur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var bíllinn dreginn af vettvangi að loknu slökkvistarfi.