Í næsta þætti af eldhugum förum við til fjalla að elta Eldhugann Rúnar Pétur þar sem hann gengur upp hvíta tinda og skíðar niður.
Rúnar pétur hefur undanfarin ár lifað megnið af árinu í húsbílnum sínum víðs vegar um Austurríki. Rúnar hefur gert það að sínu sporti að ganga upp fjallstinda og rennir sér á snjóbretti niður. Oftar en ekki er um að ræða gríðarlega hættulegar leiðir sem Rúnar velur sér, þar sem margir áhættuþættir spila inní til að mynda snjóflóðahætta, háir klettar og erfið veðurskilyrði.
Rúnar hefur verið að keppa á svokölluðum \"Freeride\" mótum víðs vegar um Austurríki og Sviss og náði hann mjög góðum árangri og var meðal annars í öðru sæti á tvem stórum mótum í austurríki.
Við fylgjum Rúnari á norðurslóðir og göngum upp Hlíðarfjall.
Við förum einnig með Benedikt Snæ á hengilsvæðið að bruna niður fjallshlíð á fjallahjóli.
Benedikt hefur iðkað fjallahjól af kappi í mörg ár og er ánægður með hvað sportið hefur stækkað undanfarin ár. Fleiri svæði tileinkuð fjallahjólamennsku skjóta stöðugt upp og er iðkunin að verða mjög fjölskylduvæn. Benedikt starfar einnig sem fjallahjólaleiðsögumaður og talar um það hvernig fegurðin á Íslandi hafði áhrif á hans atvinnuval.
Í þættinum Eldhugum í kvöld verður sannkölluð fjallastemning með þeim Rúnari Pétri og Benedikt Snæ