Brynjar undrandi: sverta ísland út um allan heim

„Þáttur Kveiks, þar sem fram komu ásakanir um alvarleg brot Samherja, kveikti eðlilega upp neikvæðar tilfinningar landsmanna. Þegar slíkt gerist hoppar Samfylkingin strax á vagn sýndarmennskunnar og slær í hvert sinn eigið met. Auðvitað kom breytingatillaga við fjárlögin frá Samfylkingunni um aukið fé til skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara án þess að nokkur krafa hafi komið frá embættunum auk þess sem auknu fé hefur verið varið til rannsókna á peningaþvætti og skattsvikum.“

Þetta segir Brynjar Níelsson í færslu á fésbók. Þar gagnrýnir Brynjar Samfylkinguna harðlega. Útgerðarfélagið Samherji er sakað um að stunda stórfelldar mútugreiðslur til stjórnmála- og embættismanna í Afríkuríkinu Namibíu til þess að ná undir sig fiskveiðikvóta. Samherji, sem er umsvifamesta útgerðarfélag Íslands með um 111 milljarða króna eigið fé, er sagt hafa greitt á annan milljarð króna í mútur á síðustu árum.“

Brynjar tjáir sig um Samherjamálið og hlut Samfylkingarinnar:

„Auðvitað kom breytingatillaga við fjárlögin frá Samfylkingunni um aukið fé til skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara án þess að nokkur krafa hafi komið frá embættunum auk þess sem auknu fé hefur verið varið til rannsókna á peningaþvætti og skattsvikum. Síðan kom krafa um kyrrsetningu allra eigna Samherja án þess að lagaskilyrði væru fyrir því auk þess að það myndi valda félaginu, hundruðum fjölskyldna og þjóðinni allri verulegu tjóni. Reynt var að blanda saman við þetta mál fiskveiðistjórnunarkerfinu og gráa lista FATF í pólitískum tilgangi. Kæmi ekki á óvart að Samfylkingin gæti skráð sýndarmennskuna í þessu máli í heimsmetabók Guinness.“

Brynjar sem er, eins og mörgum er kunnugt um, lögfræðimenntaður en hann telur það vera hlutverk stofnana að rannsaka má, ákæra og dæma eftir atvikum, en ekki fjölmiðla. Bætir Brynjar við að mikilvægt sé að stofnanir fái að vinna sitt verk á upphrópana og sýndarmennsku stjórnmálamanna. Hefur Brynjar verið harðlega gagnrýndur fyrir sjónarhorn sitt á málið.

„Orðræða sumra stjórnmálamanna í umræðunni er í mínum huga ekkert annað en aðför að réttarríkinu og með góðum rökum má kalla það pólitíska spillingu,“ segir Brynjar og kveðst alltaf verða jafn undrandi á að þingmenn leggi sérstaka áherslu á í málflutningi sínum að sverta Ísland um allan heim. Þá segir Brynjar:

„Er Samfylkingin kominn fram úr Pírötum í þeim efnum. Vona innilega að þessu fólki verði ekki falið mikilvægt vald í framtíðinni til að gæta hagsmuna þjóðarinnar.“

Þá birtir Brynjar aðra færslu og segir þar um Samfylkinguna:

„Ég gleymdi að nefna toppinn í sýndarmennsku Samfylkingarinnar. Nú á að nota styrkinn frá Samherja til flokksins undanfarin misseri til að hjálpa bágstöddum í Namibíu. Er það út af fyrir sig góðra gjalda vert og fleiri mega styrkja bágstadda í heiminum.“

Brynjar bætir við: „Þeir sem eru eldri en tvævetur muna kannski eftir styrkjunum til stjórnmálaflokka fyrir hrun og voru eðlilega gagnrýndir. Þar tróndu Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn á toppnum. En Samfylkingin hefur ekki endurgreitt þá tugi milljóna sem hún fékk í styrki þá. Það gerði þó Sjálfstæðisflokkurinn.“