Bjarni er látinn

Bjarni Kristjánsson, fyrrverandi rektor Tækniskólans, lést föstudaginn 6. september á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, níræður að aldri. Bjarni fæddist 18. maí 1929 á Norður-Hvoli í Mýrdal. Greint er frá andláti Bjarna í Morgunblaðinu. Þar segir enn fremur:

„Bjarni lauk var verkfræðingur hjá Olíufélaginu Skeljungi hf. frá 1959 til 1961 og hjá flugher Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli frá 1961 til ársins 1964 þegar Tækniskóli Íslands var stofnaður.

\"\"Bjarni var kennari þar frá stofnun skólans og varð rektor hans árið 1966. Gegndi hann þeirri stöðu næstu 24 árin, fram til ársins 1990. Þó að Bjarni léti af störfum sem rektor sinnti hann áfram stundakennslu í tækni-greinum í nokkur ár eftir rektorstímabilið. Bjarni átti ýmis áhugamál, svo sem bóklestur, kveðskap, stjórnmál, fjallgöngur og badminton.

Hann var mikill áhugamaður um veiði, bæði skotveiðar og á stöng. Bjarni var einn af stofnfélögum Ármanna, félags um stangveiði á flugu, árið 1973 og varaformaður þess árin 1974-1976 og aftur frá 1978-1979.

Bjarni var einnig formaður Skotvís, félags skotveiðimanna, árin 1992-1993.

Hann kvæntist Snjólaugu Bruun 3. janúar 1953. Þau áttu saman sex börn.