Banaslys varð á þjóðvegi 1 í hornafirði í gær

Alvarlegt umferðarslys varð í gær á Þjóðvegi 1 í námunda við bæinn Viðborðssel í Sveitarfélaginu Hornafirði um klukkan 17:30 í gær.

Ekið var á gangandi vegfaranda og samkvæmt tilkynningu frá lögreglu komu lögreglu- og sjúkraflutningamenn fljótlega á vettvang. Loka þurfti veginum fyrir allri umferð og tók rannsóknin á slysinu töluverðan tíma.

Mbl greindi frá því í morgun að um banaslys hefði verið að ræða og er þetta fimmta banaslysið sem orðið hefur í umferðinni það sem af er ári.

Töluverðar tafir urðu á umferð vegna slyssins í gær.