Friðþjófur Helgi Karlsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar seldi íbúð sína í fjölbýlishúsi í Norðurbakka. Í samtali við Hringbraut segir Friðþjófur að ástæðan fyrir sölunni séu hótanir og áreitni karlmanns í húsinu. Þá segir hann að börn hans hafi verið skelfingu lostin og ekki þorað að vera ein heima. Það sé einnig stór ástæða fyrir sölunni. Segir Friðþjófur að ástandið hafi varað meira og minna í tvö ár.
Friðþjófur hafði áður tjáð sig á Facebook og þá fjallaði Fréttablaðið um málið. Þar útskýrði hann söluna á þessa leið: „Áreitni, hótanir og ærumeiðingar en ekki síst skelfingu lostin börn sem ekki þorðu að vera heima hjá sér vegna óttatilfinningar er hluti af ástæðunni fyrir sölunni. Sem er auðvitað ömurlegt,“
Í samtali við Hringbraut segir Friðþjófur að maðurinn eigi við andleg veikindi að stríða og að á fjölskyldunni hafi dunið svívirðingar af ýmsu tagi og íbúum hafi verið haldið í heljargreipum.
Hversu lengi stóð þetta yfir?
„Meira og minna þessi tvö ár sem ég hef búið hérna.“
Hvernig lýsti áreitið sér í garð barnanna?
„Hann var að segja að ég ætti ekki börnin. Að ég væri með börn hjá mér í annarlegum tilgangi.“
Friðþjófur leitar nú að annarri íbúð fyrir sig og sambýliskonu sína. Friðþjófur segir:
„Þannig höfum við turtildúfurnar ákveðið að fara að búa. Og nú taka við spennandi tímar við leit að nýju húsnæði í Hafnarfirði sem hýst getur mig og Laufeyju mína ásamt barnaskaranum okkar.“
Að lokum segir Friðþjófur í samtali við Hringbraut að verst þyki honum hræðslan sem börnin hafa upplifað á þessum tveimur árum.