Þann 17. nóvember mun hamingjan mæta í Tjarnarbíó en þá fer fram glæsilegur viðburður sem ber yfirskriftina:
„Ástin í vísindum, listum og trú. Eða „Ást og líffræði.“
Við það tilefni stíga margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar á svið og skemmta gestum. Didda Jónsdóttir rithöfundur og skáldkona mun lesa ljóð. Auður Jónsdóttir sem gefur út sjálfsævisögu sem nú þegar hefur vakið mikla athygli verður með uppistand. Séra Davíð Þór Jónsson verður með hugvekju og þá verður kynnt til sögunnar nýtt tjáningarform sem ekki hefur sést áður á sviði, ekki svo vitað sé, en það séu ástarjátningar.
Í hverju felst það? Jú, sjö einstaklingar munu játa ást sína.
Einnig taka þátt Páll Óskar, Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarkona og Þór Jakobsson veðurfræðingur ásamt fleiri merkum gestum.
Þá mun Árni Heiðar Karlsson sjá um tónlistarflutninginn. Í tilkynningu frá aðstandendum segir:
„Ástæða til þess að þetta kvöld fór af stað og hefur verið kallað í gríni og alvöru: Ástarráðstefna er koma pólska taugalæknisins Barthosz Karasewski en hann mun halda fyrirlestur um „ást og líffræði“ “og spyrja hvort ástin sé nauðsynlegur aflvaki í þróun okkar eða huggulegur skyndibiti.
Þá verður ástarsúpa á boðstólum í eldhúsi Tjarnarbíós þetta kvöld. Þá segir að lokum:
„Þar sem ástin og hamingjan verða við völd. Einsog við öll vitum er ástin ein dýpsta kennd mannsins.“
Þátttakendur eru:
Bartosz Karasweski, læknir
Sigurlaug Didda Jónsdóttir, skáld
Auður Jónsdóttir, skáld
Þór Jakobsson, veðurfræðingur
Auður Styrkársdóttir, rithöfundur
Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona
Páll Óskar, söngvari
Stefán Ingvar Vigfússon, uppistandari
Davíð Þór Jónsson, prestur
Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarkona
Árni Heiðar Karlsson, píanóleikari
Hljómsveitin Blóðtaktur
Hljómsveitin Beðmál í Borginni
Elísabet Jökulsdóttir, viðburðastjóri.