Ákvörðun kjararáðs kveikjan að stöðunni

„Ég held að ákvörðun kjararáðs, það er mín persónulega skoðun og ég kom inn á það í ræðu minni á fimmtudag, [ákvörðunin] á sínum tíma að hækka laun opinberra starfsmanna á einu bretti um 40 prósent, og afturvirkar hækkanir, ég held að það sé á vissan hátt kannski kveikjan að því í hvaða stöðu við erum í dag. Hið opinbera kerfi, það getur aldrei leitt launaþróun á Íslandi. Verðmætin verða til úti í atvinnulífinu, hjá fyrirtækjunum í landinu og hjá útflutningsgreinunum. Opinberi geirinn, hann verður síðan að fylgja í kjölfarið. Opinberi geirinn hefur verið að leiða þetta og það er glórulaust að mínu mati.“

Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, sem er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Guðrún hélt erindi um kjarasamninga á Iðnþingi fimmtudaginn 7. mars, þar sem hún var endurkjörin formaður SI. Í erindi sínu kom hún m.a. inn á stöðuna á kjaraviðræðunum milli verkalýðsfélaganna og atvinnulífsins. Hún ræðir þessi mál til hlítar í þættinum.

Bjartsýn en hefur einnig áhyggjur

Í ræðu sinni á Iðnþinginu hnykkti hún á því að niðurstöður kjaraviðræðna myndu hafa mikil áhrif á velsæld í landinu. Aðspurð um hvort hún sé bjartsýn á að fyrirtækin standi ósködduð eftir segir hún: „Ég er alltaf bjartsýn, ég veit að við munum semja. Á einhverjum tímapunkti munu aðilar ná saman um einhvern samnefnara og deilan er enn í þeim farvegi að það er ekki komið að þeim punkti.“

Hún segist þó vitaskuld hafa áhyggjur. „Ég held að allir sem standi í atvinnurekstri hafi brugðið mjög við kröfugerðir verkalýðsfélaganna þegar þær komu fram fyrir jól. Þær voru mun hærri og í kannski öðrum takti heldur en atvinnulífið hafði átt von á. Þannig að við erum að sjá fram á samdrátt í hagkerfinu í fyrsta sinn í sjö ár. Maður hefði kannski skilið svona bólgna kröfugerð ef við værum á leiðinni upp í hagsveiflunni en ekki á leiðinni niður. Það er það sem veldur manni áhyggjum.“

„Ég held að við munum sjá fram á einhverja kólnun í hagkerfinu. Það tala allir um að reyna að ná mjúkri lendingu í stað einhvers skells. Ef við förum fram úr okkur í kjarasamningum þá aukast líkurnar hér á harðari skelli, það liggur í hlutarins eðli,“ bætir Guðrún við.

Nánar er rætt við Guðrúnu í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.