7,5 milljarðar króna hagnaður icelandair - annað samkomulag um skaðabætur frá boeing

Fram kom í tilkynningu frá Icelandair að gengið hafi verið frá samkomulagi um skaðabætur frá Boeing í dag. Er þetta í annað skiptið í haust sem þess háttar samkomulagt er gert en ekki hefur verið gefið upp u hvaða upphæðir er að ræða.

Túristi greinir frá því að hagnaður Icelandair hafi numið 7,5 milljörðun króna á þriðja ársfjórðingu og er það sama niðurstaða og fyrir sama tímabil á síðasta ári en þá þótti afkoman ekki standa undir væntingum. Var skýringin sögð sú að um hátt eldsneytisverð hafi verið að ræða og lækkun farþegatekna.

Kyrrsetning MAX þotanna hefur litað uppgjörið í ár en eins og fyrr sagði hefur verið gengið frá samkomulagi um skaðabætur hvað það varðar.

Í tilkynningu sem Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group sendi í gær segir hann góðan árangur hafa náðst í rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir að uppgjör fjórðungsins hafi litast verulega af áhrifum kyrrsetninganna.

„Sveigjanleiki í leiðakerfinu hefur gert okkur kleift að færa tíðni á milli áfangastaða og einbeita okkur að því að nýta flugflotann á arðbærum leiðum. Við höfum lagt áherslu á ferðamannamarkaðinn til Íslands að undanförnu til að mæta mikilli eftirspurn og munum halda því áfram. Íslensk ferðaþjónusta hefur notið góðs af þessari áherslubreytingu en við fluttum 30% fleiri farþega til landsins yfir háannatímann í ár en í fyrra,” segir Bogi.

Þá greinir hann einnig frá því að horfur fyrir árið 2019 hafi batnað og að þeir geri ráð fyrir talsverðum afkomubata á fjórða ársfjórðungi.

„Grunnrekstur félagsins er að styrkjast, eiginfjárstaða nam rúmlega 62 milljörðum króna og lausafjárstaða tæplega 30 milljörðum króna í lok fjórðungsins. Við erum því vel í stakk búin til að ná markmiðum okkar um að bæta arðsemi félagsins á komandi misserum,“ segir Bogi.