Zelenskí mun ávarpa Íslendinga

Vlodímír Selenskíj, Úkraínuforseti, mun ávarpa alþinþgismenn og íslensku þjóðina á morgun kl. 14:00 í gegnum fjarfundabúnað við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.

Þar segir að ávarp Zelenskís sé einstakur viðburður því þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis. Hægt verður að horfa á athöfnina í beinni útssendingu á vef Fréttablaðsins.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra athöfninni í sal Alþingis og talar í upphafi athafnarinnar. Þá mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands mæla nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.

Að því loknu tekur Zelenskí til máls. Að loknu ávarpi úkraínska forsetans mun Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, ávarpa Zelenskí forseta.

Í tilkynningu Alþingis kemur fram að Ísland hafi frá upphafi fordæmt tilefnislausa innrás Rússa í Úkraínu og lýst yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld.

Ísland tekur fullan þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi, styður við mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna og annarra stofnana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu.

Þá hefur Ísland haft milligöngu um loftflutninga búnaðar, þar á meðal hergagna, í tengslum við varnir Úkraínu. Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórnvöldum eru tiltæk og í samræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu, að því er segir í tilkynningu Alþingis.