Zahra skrifar opið bréf: „Gerðu það Katrín“

„Ég vona að þetta bréf nái til þín Katrín Jakobsdóttir, en einnig til allra hinna sem fara með pólitísk völd á Íslandi. Síðast en ekki síst vona ég að þetta nái til almennings á Íslandi.“

Þetta skrifar Zahra Hussaini í opnu bréfi til forsætisráðherra Íslands Katrínar Jakobsdóttur sem birtist á Vísi. Hún er 33 ára kona frá Afganistan.

„Ég hef búið á fjölmörgum stöðum, til að mynda í Íran, Afganistan, Pakistan, Tadjikistan, Þýskalandi og á Íslandi. Ef þú spyrð mig hvað ég hafi verið að gera í þessum löndum eða hvernig ég ferðaðist til þeirra, get ég sagt þér að ástæðan var hvorki frí né skemmtiferð. Ástæðurnar fyrir því að ég og fjölskylda mín þurftum að flytja til þessara landa voru margar; ótti, stríð, kerfisbundin mismunun, óréttlæti, vonleysi, möguleiki á betri menntun og einhverri atvinnu, möguleiki á stöðugleika í lífinu.“

Varð fyrir áfalli

Zahra segist hafa orðið fyrir áfalli þegar hún las fréttirnar um fólkið sem var brottvísað frá Íslandi til Grikklands í þarsíðustu viku.

Hún segist hafa endurupplifað þær erfiðu stundir sem hún og fjölskylda hennar höfðu þurft að ganga í gegnum.

„Það er jafnhættulegt að vera flóttamaður í landi þar sem þú hefur engin réttindi, ekkert öryggi og engan aðgang að menntun eða heilbrigðisþjónustu, og að vera í sínu eigin landi þar sem er stríð. Munurinn er sá að í stríði deyrðu snögglega, en í aðstæðum þar sem þú nýtur engra réttinda og lifir við stöðuga óvissu mætirðu löngum og kvalafullum dauða.“

Misst mikið af nánum fjölskyldumeðlimum

Zahra segist hafa misst mikið af nánum fjölskyldumeðlimum í stríði, horft upp á frændsystkini, föður og móðurbræður myrt af Talíbönum „vegna þess eins að við tilheyrum etnískum og trúarlegum minnihlutahóp í Afghanistan og vegna þess að við tölum annað tungumál.“

„Mamma mín fæddi dóttur á spítala í Íran, hún gaf henni af brjósti einu sinni, en daginn eftir sögðu læknarnir henni að barnið hefði dáið. Foreldrar mínir fengu aldrei að sjá líkið. Þau gátu ekkert gert til að leita réttar síns, einungis vegna þess að þau voru flóttafólk og höfðu engin lagaleg réttindi,“ skrifar Zahra.

„Hvers vegna er ég að segja þér þetta allt saman? Vegna þess að sama ástand blasir við flóttafólki í Grikklandi. Ég er ekki að biðja þig um að hjálpa öllu flóttafólki í Grikklandi, heldur bið ég þig um að hjálpa flóttafólki sem hefur nú þegar tekið áhættuna að komast alla leið til Íslands.“

Segir Katrínu hafa móðgast

„Gerðu það Katrín, hjálpum því flóttafólki sem kemur til landsins að finna fyrir stöðugleika, vináttu og öryggi á meðan þau fóta sig í nýju umhverfi og hættum að brottvísa fólki til Grikklands,“ skrifar Zahra.

„Í síðustu viku, aðeins nokkrum dögum eftir brottvísanirnar hræðilegu, hélt ég ræðu í gjallarhorn þegar þú áttir að tala á málþingi um raddir og tungumál etnískra minnihlutahópa. Þú móðgaðist og sagðist aldrei biðja um leyfi til að tala, hvorki nú né nokkurn tíman, og hlaust lófaklapp fyrir frá salnum. Um leið hugsaði ég: auðvitað þarftu ekki að biðja um leyfi að tala þú ert forsætisráðherra, þér er boðið út um allt. Ég þarf hinsvegar að berjast fyrir því í hvert einasta sinn að fá að tala, að rödd mín fái að heyrast, hvort sem það er á Íslandi, í Afganistan eða á málþingi um hópa sem ég tilheyri sjálf. Það er bein afleiðing þess að tilheyra minnihlutahópi.“