Áreiðanlegt flug til Íslands er undirstaða ferðaþjónustunnar að sögn Skarphéðins Bergs ferðamálastjóra. Hann var í viðtali við Lindu Blöndal í þættinum 21. Þar ræddi hann meðal annars um mikilvægi Icelandair í ferðaþjónustu Íslands. „Þó að flugfélögum sem fljúga hingað til lands sé að fjölga þá er samt sem áður stærð Icelandair talsvert mikil í þessu.“
Ástæða þess að svo mikilvægt er að bjarga Icelandair er vegna þeirrar stöðu sem fyrirtækið hefur á markaðnum. „Við sáum það þegar Wow Air hætti starfsemi á síðasta ári þá kom enginn í staðinn fyrir þá. Icelandair jók sitt flug á móti. Önnur félög stækkuðu eitthvað við sig en það var aðallega Icelandair sem steig inn í þetta gat.“
Önnur flugfélög geta komið einhvern tímann en það mun taka langan tíma að byggja upp flug hingað til lands. „Það er ekki hægt að ganga út frá því að ef það verða einhverjar meiriháttar breytingar að það komi bara einhver og bjargi okkur út. Sérstaklega ekki við þær kringumstæður sem núna eru.“
Þekkt vörumerki
Ferðafélög um allan heim eru í vandræðum og Skarphéðinn segir að ferðaþjónustan muni koma verst út úr kórónaveirunni. „Flugfélögin eru stór og mikil fyrirtæki með mikil umsvif. Það að byggja upp leiðakerfi er heilmikið mál sem gerist ekkert á einni nóttu. Það mun taka marga mánuði fyrir Icelandair eða hvern annan sem ætlar að fljúga hingað að byggja upp leiðakerfi sem stendur undir sér.“
Vörumerki Icelandair út á við er líka mikilvægt. „Það eru ábyggilega verðmæti fólgin í því. En nú eru fleiri vörumerki á Íslandi sem eru verðmæt eins og bláa lónið. En Icelandair er náttúrulega þekkt og búið að vera það lengi“.
Íslendingar ferðast innanlands
Þriðji aðgerðapakki ríkisstjórnar mun gagnast ferðaþjónustufyrirtækjum mest að sögn Skarphéðins. „Bæði þetta með laun við uppsagnarfrestinn og líka hlutabótaleiðin. Þar helst ráðningarsambandið. Þetta skiptir máli.“
Hann telur það ljóst að Íslendingar muni kjósa að ferðast um landið. „Sannarlega mun það muna um fyrir fyrirtækin ef Íslendingar kjósa að ferðast frekar um landið."