„You saved my life svaraði Reagan í bakgarði sendiráðsins 1986“

Friðrik Brekkan er mörgum kunnugur en síðust áratugina hefur hann starfað við leiðsögn ferðamanna bæði hér á landi og víðs vegar um heim. Hann talar 7 tungumál og kann ótal skemmtilegar sögur af sínum langa ferli sem hann kemur m.a. inná í samtali við Sigurð K. Kolbeinsson þáttastjórnanda hlaðvarpsins Lífið er lag.

Friðrik hóf ungur störf hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins í Gimli og fyrstu launin voru $5 seðill sem hann geymir enn og fékk að launum frá bandarískum hjónum sem hann gekk með um Reykjavík dag einn á 7. Áratugnum. Friðrik starfaði sem upplýsingafulltrúi sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík og hafði í nógu að snúast í kringum leiðtogafund Reagan og Gorbachev árið 1986. Eftir að fundinum fræga lauk mætti forseti Bandaríkjanna í stutta heimsókn í sendiráð sitt við Laufásveg til að heilsa uppá sendiherran og starfsmenn sendiráðsins. Forsetinn hávaxi hrasaði um hellustein í garðinum og meðan öryggisverðir horfðu á greip Friðrik snögglega í handlegg hans og kom að sögn í veg fyrir að hann dytti aftur fyrir sig. Reagan sagðir þá snögglega „you saved my life“ og bað hann að standa sér við hlið fyrir framan myndavélar bandarísktra sjónvarpsstöðva þar sem milljónir manna fengu að fylgjast með. Friðrik er rétt skriðinn yfir sjötugt og enn í fullu starfi fyrir ýmsa erlenda hópa og einnig fyrir Ferðaskrifstofu eldri borgara.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is