„You can't make this shit up!!!!“

„Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er dómsmálaráðherra. Samfélagið er í lamasessi og óteljandi álitamál og viðfangsefni fylgja þessum, já, fordæmalausu aðstæðum. En hún er bara að hugsa um að auka aðgengi að áfengi. You can't make this shit up!!!!“

Þetta segir rithöfundurinn Illugi Jökulsson á Facebook-síðu sinni og birtir ummæli sem Áslaug Arna lét falla á Twitter. Stundin fjallaði um ummælin og hefur fréttin vakið gríðarlega athygli. Í frétt Stundarinnar sagði að dómsmálaráðherra teldi að nú á tímum samkomubanns vegna COVID-19 veirunnar væri þörf á löglegri netverslun með áfengi. Áslaug birtir skoðun sína á Twitter. Áformaði hún að heimila slíka netverslun og hafa áform þess efnis verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.

Fjölmargir hafa gagnrýnt Áslaugu fyrir ummælin en í þeim hópi eru bræðurnir Hrafn og Illugi Jökulssyni. Andrés Magnússon blaðamaður á Viðskiptablaðinu sem oft er kallaður til fyrir kosningar hjá Sjálfstæðisflokknum gagnrýnir Illuga fyrir ummælin og spyr:

  1. Hvenær er rétti tíminn til þess að leggja fram slíkt frumvarp?
  2. Hvað hefurðu fyrir þér um að ráðherrann hugsi ekki um annað?

Illugi svarar:

„1. Ekki þegar hálf þjóðin er í sóttkví og ástandið viðkvæmt á flesta lund.

  1. Ekkert nema það að þetta er þvísemnæst það eina sem ég hef spurt af henni síðan krísan skall á. Og hún hefur fyrr sýnt að verslun með áfengi sé henni mjög ofarlega í huga.

Þá segir Hrafn Jökulsson:

„Mikill léttir að æðsti yfirmaður löggæslu er með forgangsröðina á hreinu í miðjum heimsfaraldri.“