Ýmir: Þessa leið ætti Ís­land að fara – „For­réttindi sem aðrir hafa ekki“

„Krísu­stjórnun er hægt að flokka niður í við­bragð, næst við­gerð og síðast við­snúning. Við erum í við­bragði en við­gerðin þarf að hefjast strax og ekki dugar að bíða og vona að mót­efni verði til í bráð og að allt fari í svipað horf og áður. Við þurfum „plan B“.“

Þetta segir Ýmir Björg­vin Arthúrs­son í að­sendri grein í Frétta­blaðinu í dag. Kórónu­veirufar­aldurinn heldur á­fram að hafa á­hrif um allan heim og eru á­hrifin á Ís­landi mikil, enda á Ís­land mikilla hags­muna að gæta að ferða­menn haldi á­fram að koma til Ís­lands.

Ýmir, sem rekur fyrir­tækið Magi­cal Iceland, segir að Ís­lendingar þurfi plan sem er heilla­skref sama hver sviðs­myndin verður.

„Plan sem gert er með hamingju og hag­sæld Ís­lendinga í for­grunni. Líf án veiru. Plan sem skilar stöðugum gjald­eyris­tekjum og land­kynningu hjá þeim ferða­mönnum sem við veljum og viljum fá. Veljum til okkar er­lenda gesti sem deila menningu, á­huga­málum og mynda tengsl við náttúru og fólk. Skil­greinum mark­hópa, búum til mis­munandi bú­setu­pakka og bjóðum til Ís­lands í tíma­bundna bú­setu „Ís­lands­vinum“ í náttúru-, menningar- og heilsu­skjól.“

Ýmir segir að Ís­lendingar séu í lykil­stöðu til að skerpa á í­mynd okkar sem á­fanga­staðar og velja um leið til fram­tíðar hvaða gesti við fáum til okkar. Hann leggur svo til nokkuð rót­tæka en at­hyglis­verða hug­mynd.

„Ein leið gæti verið að semja við al­þjóð­leg stór­fyrir­tæki og bjóða starfs­mönnum þeirra að flytja tíma­bundið til Ís­lands með fjöl­skyldur sínar og vinna „að heiman“. Stór og af­mörkuð mengi af fjöl­skyldum yrðu flutt til landsins og öll færu í gegnum veiru­skimun og / eða sótt­kví. Val gæti verið um 3, 6, 9 eða 12 mánaða veru með fjöl­skyldunni. Hægt væri að bjóða bú­setu í mis­munandi lands­hlutum til að auðga upp­lifun gesta okkar. Frelsi, víð­átta, hrein­læti, ægi­fögur náttúra, fram­bæri­legt heil­brigðis­kerfi og mennta­stofnanir, sund­laugar og seiðandi norður­ljós eru okkar for­réttindi sem aðrir hafa ekki svo eitt­hvað sé nefnt.“

Ýmir segir að þessir „nýju vinir okkar“ myndu skapa mikinn efna­hags­legan, menningar- og sam­fé­lags­legan á­vinning fyrir land og þjóð.

„Verslun og þjónusta mun blómstra sem aldrei fyrr. Förum í við­gerð og látum við­snúninginn verða að á Ís­landi búi næstu 24 mánuðina að meðal­tali 1 milljón hamingju­samra, veiru-frírra, náttúru- og frelsisunnandi Ís­lands­vina.“