Alma D. Möller landlæknir segir yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga vera mikið áhyggjuefni en verkfallið gæti haft mikil áhrif á sýnatöku en líkt og áður hefur verið greint frá voru innri landamærin opnuð síðastliðinn mánudag.
„Það er auðvitað erfitt að veita heilbrigðisþjónustu með einungis undanþágu mönnun og ljóst að það verður mikil röskun á starfsemi,“ sagði Alma en hjúkrunarfræðingar eru í sýnatöku á landamærum og sinna smitrakningu.
Verkfallið var samþykkt fyrir tæpum tveimur vikum og hefst næsta mánudag að öllu óbreyttu. Hjúkrunarfræðingar hafa verið samningslausir frá því í mars í fyrra en kjarasamningur sem var gerður milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins var felldur síðastliðinn apríl.
Alma sagði mikilvægt að samningsaðilar keppist við að ná saman svo hægt sé að ná samningum áður en verkfallið hefst næstkomandi mánudag. „Ella er ljóst að við munum þurfa að reiða okkur á undanþágur og við vonum auðvitað að það verði vel tekið í þær varðandi þetta gríðarlega mikilvæga verkefni,“ sagði Alma.
Á fundinum var farið yfir stöðuna þegar kemur að opnun landamæra en frá því á mánudaginn hafa fimm manns greinst með COVID-19 við landamæraskimun. Aðeins tveir reyndust þó vera smitandi og sagði Þórólfur að niðurstöðurnar lofuðu góðu.
Nokkrir hnökrar hafa þó verið í smitrakningarappinu þar sem erfiðlega hefur gengið að koma upplýsingum um niðurstöður til ferðamanna. Unnið er að uppfærslu appsins til að gera það áreiðanlega en sífellt fleiri eru að nota appið og eru nú rúmlega 143 þúsund manns búnir að hlaða því niður.