Yfirlýsingin eins og Sir Humphrey hefði skrifað hana

Ólafur Arnarson, pistlahöfundur Dagfara og Náttfara hér á Hringbraut, gefur lítið fyrir það álit Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra að góður árangur hafi náðst á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow, en í Fréttablaðinu í gær birtist grein eftir Guðmund Inga undir fyrirsögninni „Árangursríkur fundur“.

Í nýjasta Náttfara fer Ólafur háðulegum orðum um afrakstur loftslagsráðstefnunnar þar sem tugir þúsunda hafi komið til að ná samkomulagi um aðgerðir til að tryggja að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5°C. Þar hafi komið saman ráðherrar og fyrirmenni, fjöldi embættismanna og áhugamanna um loftslags mál, auk þess sem „nokkrir auðkýfingar gáfu sér tíma, á milli þess sem þeir skutust út í geim á einkaflaugum sínum, til að skreppa á einkaþotum sínum til Glasgow.“ Þá skrifar Ólafur að þrátt fyrir að nokkra helstu „pótintátana“ hafi vantað hafi ráðstefnugestir komið í 400 einkaþotum til loftslagsráðstefnunnar.

Ólafur vitnar í orð Boris Johnsons um að dómsdagsklukkuna vantaði aðeins eina mínútu í miðnætti og veltir fyrir sér hvort þessi naumi tími sem til stefnu er hafi ráðið því að fólkið kom á einkaþotum og skrifar: „Ef vesalings fólkið, sem reynir að bjarga okkur frá sjálfum okkur, hefði þurft að reiða sig á almennt farþegaflug og aðrar almenningssamgöngur er óvíst að það hefði náð á fundinn í tæka tíð til að bjarga heiminum.“ Hann heldur áfram og skrifar að Zoom-fundur hafi auðvitað ekki komið til greina vegna þess að slíkir fjarfundir verði flóknir í framkvæmd þegar þúsundir taka þátt í þeim.

Ólafur segir Guðmund Inga mögulega ná að blekkja sjálfan sig með það að fundurinn hafi verið árangursríkur en enga aðra, sjálf Greta Thunberg hafi kallað ráðstefnuna bla bla bla fund og sú niðurstaða hennar hafi ekki verið hrakin með rökum. Engin niðurstaða hafi komið út úr fundinum.

Það gerist ekki á hverjum degi að Ólafur sé sammála Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins en hann vitnar í Reykjavíkurbréf Davíðs og segir hann réttilega hafa bent á að yfirlýsing loftslagsráðstefnunnar sé skjal sem ráðuneytisstjórinn Sir Humphrey Appleby hefði verið fullsæmdur af. Í yfirlýsingunni sé ekkert sem hönd festi á þrátt fyrir að í því sé aragrúi af fallegum orðum og hugtökum. Ráðstefnan hafi verið sýndarmennska og hræsni.

Í niðurlagi pistilsins veltir Ólafur því fyrir sér hvort Guðmundur Ingi hafi verið á einhverjum allt öðrum fundi en loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow. Það gæti verið skýring þess að hann telji fundinn hafa verið árangursríkan.