Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, mun ekki annast brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár líkt og undanfarin ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Þjóðhátíðarnefnd hefur sent frá sér. Þá kemur fram að Ingólfur muni ekki koma fram á hátíðinni í ár.
„Þessi ákvörðun nefndarinnar svarar fyrir sig sjálf og verður ekki rædd frekar af hennar hálfu,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Margar frásagnir um meint kynferðisofbeldi af hálfu Ingólfs hafa komið fram samfélagsmiðlum síðustu daga og er ákvörðun nefndarinnar nær örugglega rakin til þeirra.