Yfirlýsing frá forsetanum: Fundaði með Katrínu í morgun

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, átti í morgun fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.

Í yfirlýsingunni kemur fram að rætt hafi verið um viðræður hennar, Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formanns Framsóknarflokksins, undanfarna daga, og þau áform að þessir þrír flokkar haldi ríkisstjórnarsamstarfi áfram.

Ekki koma fram frekari upplýsingar í yfirlýsingunni en tekið er fram að forseti muni áfram fylgjast með gangi mála eftir þörfum.