Yfirlýsing frá fjölskyldu Johns Snorra: Eitthvað gerðist á leiðinni niður

Fjölskylda Johns Snorra Sigurjónssonar hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að pakistönsk yfirvöld tilkynntu að þremenningarnir sem hugðust klífa K2, John Snorri þar á meðal, væru taldir af.

Ekkert hefur spurst til þeirra JohnS Snorra, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr Pireto síðan snemma að morgni 5. febrúar.

Í yfirlýsingunni, sem meðal annars er birt á Facebook-síðu Johns Snorra, kemur fram þakklæti til þeirra sem tóku þátt í björgunaraðgerðum. „Allir þrír voru sterkir göngumenn og höfðu fulla getu til þess að koma sér á spjöld sögunnar með því að standa á tindi K2 að vetri til. Miðað við síðustu staðsetningu Johns Snorra sem vitað er um erum við þess fullviss að þeir hafi komist á tind K2 en eitthvað hafi gerst á leiðinni niður.“

Fjölskyldan þakkar yfirvöldum í Pakistan, Chile og á Íslandi fyrir samstöðuna og stuðninginn á þessum erfiðu tímum. „Það er enginn vafi í okkar huga að umfang leitarinnar og sú tækni sem var notuð á sér engar hliðstæður og verður vonandi til þess að bæta öryggi fjallgöngumanna um allan heim.

„Vinátta þeirra Ali, Sajid og Johns er eitthvað sem við munum geyma í hjörtum okkar um alla tíð. Að sama skapi erum við þakklát fyrir það að Sajid hafi komist lífs af,“ segir í yfirlýsingunni en Sajid þurfti frá að hverfa áður en hópurinn hélt á tind K2 þar sem bilun kom upp í súrefnisbúnaði hans. „Ali, John og Juan Pablo munu lifa um alla tíð í hjörtum okkar.“