Yfir­læknir á bráða­mót­töku hjólar í heil­brigðis­ráð­herra: „Á endanum berð þú á­byrgð“

Jóhann Már Ander­sen, yfir­læknir á bráða­mót­tökunni á Sel­fossi, er allt annað en sáttur með Willum Þór Þórs­son heil­brigðis­ráð­herra þegar það kemur að mönnun á spítölum landsins.

„Hæst­virtur heil­brigðis­ráð­herra. Mig langar í fyrstu að óska þér til hamingju og vel­farnaðar með nýtt starf þitt sem ráð­herra heil­brigðis­mála á Ís­landi. Fram undan er gríðar­lega krefjandi verk, og viða­mikið kerfi sem þarf að kynnast og læra á,“ skrifar Jóhann í pistlií Morgunblaðinu.

„Nú er einna efst á baugi mikill mönnunar­vandi, og kerfið okkar svelt af mann­skap til að sinna lág­marks­þjónustu, og endur­tekið hafa vaktir staðið með mönnun sem telst undir hættu­mörkum. Mig langaði að skrifa þér þetta bréf til að bjóða þér að minnsta kosti ör­litla lausn á þessum vanda sem gæti hjálpað til að hafa fólk á gólfinu til að sinna okkar skjól­stæðingum,“ bætir Jóhann við.

„Nú á þessum síðustu erfiðu tímum, þegar kerfið okkar stendur frammi fyrir ein­hverri mestu krísu sem við höfum kynnst í formi Co­vid-sjúk­dómsins og skorts á hjúkrunar- og dvalar­rýmum, mann­eklu, þreytu og á­lags, þá á­kvað ein­hver metnaðar­fullur ein­stak­lingur hjá Kjara- og mann­auðs­sýslu ríkisins að ein­hliða endur­túlka á­kvæði í kjara­samningi lækna, eftir 15 ár af ó­breyttri túlkun. Um ræðir á­kvæði um „breytingu á staðar­vakt“ lækna, innan 24 klukku­stunda.“

Jóhann segir að þar til nú hefur þetta á­kvæði verið túlkað sem svo, að ef veikindi eða aðrar að­stæður verða til þess að læknir er kallaður á vakt með innan við 24 klst. fyrir­vara, þá hafa verið greiddar fjórar yfir­vinnu­stundir.

Hann spyr síðan Willum stórra spurninga.

„Nú langar mig að spyrja þig: Hversu mikils virði er mönnun lækna í þínum huga? Í lang­flestum til­fellum eru það lækna­nemar, ung­læknar og sér­náms­læknar sem standa staðar­vaktir utan dag­vinnu. Til að setja þennan kostnað í eitt­hvert sam­hengi, þá eru þessi fjórir tímar sem greiddir eru ó­dýrari en tvö hefð­bundin PCR-próf sem við höfum verið að taka í ef­laust vel tug­þúsunda tali undan­farin tvö ár. Ég velti einnig fyrir mér hvort tíma­setning þessarar endur­túlkunar hefði ekki mátt að­eins bíða og velja ein­hverja betri tíma­setningu en í á­standi þar sem álag, þreyta og lang­tíma­veikindi eru farin að taka sinn toll, og yfir­menn berjast í bökkum við að halda uppi neyðar­mönnun. Yfir­menn standa nú frammi fyrir því, að hringja út lista af læknum til að manna vaktir, og þurfa að til­kynna þeim læknum að ríkið telji ekki röskun á lífi þeirra, eða góð­vild þeirra til að hjálpa til, neins virði eða að minnsta kosti minna virði en tveggja PCR-prófa.“

„Rétti­lega hafa læknar ein­fald­lega neitað að taka þessar vaktir, þar sem hvatinn er enginn til að stökkva frá lífi sínu og fjöl­skyldu, með nokkurra klukku­tíma fyrir­vara, til að standa kvöld- og nætur­vaktir. Nú trúi ég ekki öðru en að maður í þinni stöðu geti lag­fært þetta, eða að minnsta kosti beðið KMR að bíða með endur­túlkun þessa þar til við setjumst aftur að samninga­borðinu. Ég hugsa að það muni ekki kosta nema eitt eða tvö sím­töl, miðað við hvernig kaupin á eyrinni ganga fyrir sig. Ég bið þig því ein­lægt að lag­færa þetta mál sem fyrst, því á hverjum degi vantar lækna á gólfið til að sinna þeim skjól­stæðingum sem þú, á endanum, berð á­byrgð á,“ skrifar Jóhann að lokum.