Um næstu mánaðamót munu um 104.000 Íslendingar hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt bóluefnis. Hingat til hafa rúmlega 80 þúsund fengið allavega fyrri skammtinn og verður næsta viku metvika í bólusetningum þar sem tæplega 23 þúsund manns fá fyrri bólusetningu.
Þessar tölur tekur Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra saman í grein sem hún birti í dag. „Það er því óhætt að segja að bólusetningar gangi vel,“ skrifar hún.
„Við lok fyrsta ársfjórðungs ársins 2021, í lok mars, höfðu 49.300 einstaklingar verið bólusettir með a.m.k. fyrri skammti bóluefnis. Það er í samræmi við áætlanir heilbrigðisráðuneytisins um afhendingar bóluefna á því tímabili,“ skrifar hún.
Þá segir Svandís að á öðrum ársfjórðungi muni bóluefnið berast enn hraðar til landsins og geri spár ráð fyrir því að um mitt ár, það er 1. júlí, hafi allir sem eru 16 ára og eldri fengið fyrsta skammt bóluefnis.
„Bólusetning eldri hópa dregur úr hugsanlegum beinum afleiðingum faraldurs, þar sem líkur á alvarlegum veikindum aukast í takti við aldur. Framgangur bólusetninga hefur því afgerandi áhrif á það hversu hratt við getum farið að lifa eðlilegra lífi, án þess að íþyngjandi reglur um samkomutakmarkanir séu í gildi. Það er því fagnaðarefni að bólusetningar ganga vel og að við sjáum fram á bjartari tíma,“ skrifar Svandís og lýkur pistlinum á kveðju til landsmanna: „Gleðilegt sumar!“