„Það greindust allmörg smit til viðbótar í gær, yfir 20, en það á eftir að fá staðfestar tölur um það, eins hvort þeir hafi verið í sóttkví.“
Þetta sagði Runólfur Pálsson, yfirmaður COVID-göngudeildar Landspítalans, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Þrettán smit greindust innanlands í gær, þar af voru átta utan sóttkvíar, en flest smitin sem greindust í gær tengjast hópsýkingu á leikskólanum Jörfa. Óvíst er hversu margir þeirra sem greindust í gær tengist umræddri hópsýkingu.
„Þetta er stór hópsýking og hún getur hæglega breiðst út og orðið stærri,“ sagði Runólfur um stöðuna.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var einnig í Morgunútvarpinu og sagði að undanfarna tólf til þrettán mánuði hafi okkur gengið nokkuð vel að ná utan um hópsýkingar.
„En það hefur kostað mikið átak og skerðingu á borgararéttindum sem er farið að pirra fólk dálítið. Menn eru ekki mjög ákafir að fara að herða skrúfuna aftur en ég held að það sé algjörlega lífsnauðsynlegt,“ sagði Kári sem benti á að rekja mætti hópsýkinguna nú til einstaklings sem virti ekki reglur um sóttkví eftir komuna til landsins.
Kári sagði að í rauninni væri aðeins tvennt í stöðunni, annað hvort þyrfti að herða aðgerðir á landamærunum eða búa þannig um hnútana að fólki standi ekki annað til boða en að virða sóttkví. Benti hann á að yfirvöld hefðu reynt það „einmana“ héraðsdómari hafi kveðið upp þann úrskurð að það væri ekki í samræmi við lög. Þá sé ekki annað í stöðunni en að Alþingi taki þetta að sér og setji nægilega skýr lög um sóttvarnarhús.