Yfir 100 smit greindust í gær: 24 á sjúkrahúsi og tæplega 1.400 í einangrun

Alls greindust 106 kórónuveirusmit á landinu í gær, 78 greindust í einkennasýnatöku en 28 í sóttkvíarskimunum. 62 einstaklingar sem greindust í gær voru ekki í sóttkví.

Þetta kemur fram í tölum sem birtust á vefnum COVID.is klukkan 11.

Alls eru 24 á sjúkrahúsi og 1.384 í einangrun. Heildarfjöldi smita í faraldrinum hér á landi nálgast 10 þúsund óðfluga en þegar þetta er skrifað hafa 8.900 staðfest smit greinst hér á landi frá því að fyrsta smitið greindist í lok febrúarmánaðar á síðasta ári.