Willum Þór: Stutt í að landsmenn mega fella grímuna

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að það sé stutt í að grímuskyldan innanlands verði felld úr gildi. Þetta kom fram í viðtali við hann í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Margir eru orðnir vanir því að setja upp sóttvarnargrímu um leið og gengið er inn í verslun eða annan opinberan stað.

Sá tími verður brátt liðinn ef marka má Willum:

„Ég held að það sé nú bara skammt undan, það er allt að vinna með okkur,“ sagði hann.