Willum með lausn á hækkandi aldri þjóðar: „Hætta að sjúk­dómsvæða eldra fólk og hjálpa þeim að lifa virku lífi lengur“

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylkingarinnar og Willum Þór Þórs­son heil­brigðis­ráð­herra tókust á á Al­þingi í dag umskýrslu ráð­gjafar­fyrir­tækisins McKins­ey um stöðuna á heilbrigðismálum á Íslandi.

Helga Vala spurði Willum um hvernig hann ætlaði að mæta mann­afla­þörf heil­brigðis­kerfisins með hækkandi aldri þjóðar en samkvæmt McKins­ey mun eftir­spurn eftir heil­brigðis­þjónustu aukast um allt að 1,2% á ári vegna lýð­fræði­legra breytinga.

Willum sagði skýrsluna sviðs­mynda­greiningu en sagði ljóst að það þyrfti að bregðast við. Ráð­gjafar­fyrir­tækið væri hins vegar með skýra lausn í skýrslunni sjálfri sem hann hvatti alla til að lesa.

„Við þurfum að auka veru­­lega í og hefðum átt að byrja á því miklu fyrr en við erum þó farin af stað að auka heima­hjúkrun, að auka stuðning við fólk heim og fara hætta sjúk­­dómsvæða eldra fólk. Við eigum að hjálpa fólki að lifa virku lífi lengur á ævinni eins og vilji er til og hætti að marka þetta við ein­hvern aldur,“ sagði Willum. Hann sagði þetta vera vel fram­sett í skýrslunni og hvatti alla til að kynna sér þessa „frá­bæru skýrslu.“

Helga spurði þá ráð­herra hvernig hann ætlaði að mæta mönnunar­vandanum þegar ríkis­stjórnin væri að setja að­halds­kröfur á heil­brigðis­stofnanir.

Willum sagði það ekki rétt þar sem engin að­halds­krafa væri sett á heil­brigðis­stofnanir næstu tvö árin.