Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, sagði á Alþingi í dag að það væri sitt mat að það eigi að halda áfram með einangrun en samkvæmt skrefi tvö, sem var boðað að tæki gildi á morgun, átti sóttkví og einangrun að heyra sögunni til.
„Við erum hér á viðkvæmum tímapunkti í þessari ómikron bylgju og faraldrinum öllum þar sem útbreiðsla smita er mjög mikill. Blessunarlega hefur fækkað þeim sem veikjast illa og til að mynda þurfi á gjörgæslumeðferð að halda,“ sagði Willum í svari við fyrirspurn Guðmundar Inga Kristinssonar, þingmanni Flokk fólksins.
„Meginspurningin, á þessum viðkvæma tímapunkti, hvort við eigum að, eins og boðað er í skrefið tvö, að hætta með einangrun og sóttkví. Í ljósi þessarar mikilli útbreiðslu sem er auðvitað að valda vandkvæðum á öllum okkar heilbrigðisstofnunum ekki síst eins og háttvirtur þingmaður fór yfir hér á Landspítalanum,“ sagði Willum.
„Það er hins vegar orðið síðan snúið að heildarmyndinni, hversu mikið þessar fjöldatakmarkanir og klukkutímar í opnun veitingastaða og svo framvegis. það er orðið snúnara að meta hvaða áhrif það hefur í að verja heilbrigðisstofnanirnar.
„En ég segi það bara hér og nú að einangrunin, af því við vorum bara breytir núna á mánudaginn, að við eigum að halda í hana. Það er mitt mat,“ sagði Willum.