Willum nefnir drauma­ríkis­stjórnina

Willum Þór Þórs­son, þing­maður Fram­sóknar­flokksins, var gestur í hlað­varps­þættinum Arnar­hóll í vikunni en segja má að spjallið hafi í senn verið á­huga­vert og skemmti­legt.

Í þættinum var Willum meðal annars beðinn um að nefna sína drauma­ríkis­stjórn og velja þá ein­stak­linga sem hann treystir best til að fara fyrir ráðu­neytum ís­lenska stjórn­kerfisins. Willum sagði að margir hefðu komið upp í hugann, þar á meðal ein­staklingar sem hann þekkir ekki neitt en hafa hrifið hann, til dæmis með við­tölum í fjöl­miðlum eða á öðrum vett­vangi.

Svona er drauma­ríkis­stjórn Willums:

For­sætis­ráð­herra: Stefán Arnar­son, þjálfari Fram í hand­bolta

Willum sagði að við Ís­lendingar værum heppnir með nú­verandi for­sætis­ráð­herra, Katrínu Jakobs­dóttur, sem hann sagði vera góðan leið­toga. „Hún hefur þá eigin­leika að halda saman liði,“ sagði Willum og bætti við að hann þekkti Stefán per­sónu­lega. „Hann hefur þessa sömu eigin­leika, afar rétt­sýnn og kann að byggja upp góðan lið­sanda.“

Fjár­mála­ráð­herra: Gylfi Zoega, hag­fræðingur

Willum sagði að tveir hefðu komið upp í hugann, Gylfi og Ás­dís Kristjáns­dóttir hjá Sam­tökum at­vinnu­lífsins. Gylfi varð þó fyrir valinu en hann er í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans og hag­fræði­menntaður. Þá skrifaði hann skyn­sam­legar greinar og býr auk þess yfir þeim eigin­leika að koma hlutum frá sér á manna­máli.

Fé­lags- og barna­mála­ráð­herra: Hrafn­hildur Skúla­dóttir, fyrrum hand­bolta­kona

Willum benti á að Hrafn­hildur væri leikja­hæsta lands­liðs­konan í hand­bolta frá upp­hafi. „Það er mikill kraftur sem fylgir henni og gleði. Hún er menntaður kennari og hefur alla eigin­leika til að taka vel utan um við­kvæman mála­flokk.“

Heil­brigðis­ráð­herra: Katrín Jóns­dóttir, læknir og fyrrum fót­bolta­kona

Katrín er fyrr­verandi fyrir­liði ís­lenska lands­liðsins í fót­bolta. „Hún er rétt­sýnn leið­togi og alltaf til­búin til að gefa allt fyrir heildina,“ sagði Willum og bætti við að hann vildi fá doktor Janus Guð­laugs­son sem að­stoðar­mann til að sjá um lýð­heilsu­þáttinn.

Sam­göngu- og sveita­stjórna­ráð­herra: Tryggvi Snær Hlina­son, körfu­bolta­maður

Willum sagðist hafa hrifist mjög af Tryggva þegar hann horfði á þáttinn Um land allt á Stöð 2 á á dögunum. „Við þurfum að hafa ein­hvern sem við neyðumst til að líta upp til,“ sagði Willum og hló og vísaði til hæðar Tryggva sem er at­vinnu­maður í körfu­bolta. Tryggvi, sem er úr Svart­ár­koti í Bárðar­dal, ætlaði að verða bóndi en endaði ó­vænt sem at­vinnu­maður í körfu­bolta.

Mennta- og menningar­mála­ráð­herra: Jón Jóns­son, söngvari og fyrrum fót­bolta­maður

„Hann tikkar í öll boxin. Hann var fínn fót­bolta­maður, ég ætla ekki að segja frá­bær en hann var fínn. Hörku­ba­k­vörður og frá­bær tón­listar­maður. Svo þekkir hann mennta­kerfið á öllum stigum,“ sagði Willum og bætti við að nauð­syn­legt væri að hafa einn ráð­herra sem gæti gripið í gítarinn.

Dóms­mála­ráð­herra: Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður og fyrrum fót­bolta­maður

Willum þekkir Vil­hjálm vel en hann þjálfaði hann hjá Þrótti í gamla daga. Willum lét hann gjarnan sjá um upp­hitun en eins og flestir vita er Vil­hjálmur lög­fræðingur. Willum telur að hann væri full­kominn í em­bætti dóms­mála­ráð­herra.

Ferða-, Iðnaðar-, og ný­sköpunar­ráð­herra: Ásta Fjel­sted, fram­kvæmda­stjóri Krónunnar

Willum segir að tvær konur hafi komið í hugann en Ásta varð fyrir valinu. Hún var áður hjá við­skipta­ráði en er nú fram­kvæmda­stjóri Krónunnar. „Hún er véla­verk­fræðingur og er með bak­grunn í þetta starf. Hún hefur starfað víða um heim og svo kemur hún vel fyrir, er rök­föst og kemur hug­myndum vel á fram­færi.“

Sjávar­út­vegs og land­búnaðar­ráð­herra: Heið­rún Lind Marteins­dóttir, SFS

Heið­rún Lind er lög­maður og fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyrir­tækja í sjávar­út­vegi. „Hún er afar rök­föst, skýr og fylgin sér í mál­flutningi og yrði frá­bær,“ segir Willum.

Utan­ríkis­ráð­herra: Sara Björk Gunnars­dóttir, fót­bolta­kona

„Hún er búin að spila í mörgum löndum, er kraft­mikill ein­stak­lingur, ein­beitt og á­ræðin og yrði frá­bær full­trúi þjóðarinnar,“ sagði Willum en Sara er leikja­hæsta lands­liðs­kona Ís­lands frá upp­hafi, ein besta knatt­spyrnu­kona heims og Evrópu­meistari með Lyon svo eitt­hvað sé nefnt.

Um­hverfis­ráð­herra: Elísa­bet Margeirs­dóttir, veður­frétta­kona og hlaupa­kona

Willum sagðist hafa séð Elísa­betu í fjöl­miðlum og hún hafi heillað hann upp úr skónum. Elísa­bet er einn fremsti utan­vega­hlaupari okkar Ís­lendinga og á hún mý­mörg hlaup að baki þar sem hún hefur lagt tugi, ef ekki hundruð, kíló­metra að baki.