Willum: Faraldrinum er ekki lokið

„Við þurfum öll að sýna á­byrgð með hegðun okkar þar til bylgja far­aldursins gengur yfir“ segir Willum Þór Þórs­son heil­brigðis­ráð­herra, í orð­sendingu sinni sem var birt á vef ráðu­neytisins í gær.

Mikilvægt sé að fólk viðhafi varúð og sýni tillitssemi í samskiptum við einstaklinga sem teljast til viðkvæmra hópa, s.s. aldraða og fólk með bælt ónæmiskerfi.

„Ég hvet fólk til leggja þannig sitt af mörkum til að vernda viðkvæma hópa og verja heilbrigðiskerfið fyrir miklu álagi.“