Will Smith sendir frá sér yfir­lýsingu eftir of­beldið á Óskarnum: „Ég skammast mín og hegðun mín var ekki mér til sóma“

Stór­leikarinn Will Smith sem á­kvað að slá grín­istann Chris Rock í and­litið eftir hann gerði grín að eigin­konu hans hefur nú sent frá sér af­sökunar­beiðni.

„Of­beldi í allri sinni mynd er eitrað og eyði­­leggjandi. Hegðun mín á Óskars­verð­­launa­há­­tíðinni í gær­­kvöldi var ó­­á­­sættan­­leg og ó­­af­sakan­­leg,“ segir Will í til­­­kynningunni. Hann segir brandarann um Jadu hafa gengið sér of nærri.

Eins og fram hefur komið gerði Chris Rock grín að hár­­leysi leik­­konunnar, sem hefur snoðað sig í rúmt ár vegna sjálf­­sof­­næmis­­sjúk­­dóms. Chris líkti henni við G.I Jane á sviðinu og sló Will Smith hann í kjöl­farið.

„Ég vil biðja þig opin­ber­­lega af­­sökunar Chris. Ég gekk yfir strikið og þetta var rangt af mér. Ég skammast mín og hegðun mín var ekki mér til sóma. Það er ekkert pláss fyrir of­beldi í heimi ástar og gæsku.“

Þá biður leikarinn Akademíuna einnig af­­sökunar sem og fram­­leið­endur há­­tíðarinnar og sam­­starfs­­fólk sitt í King Richard. Fréttir bárust í dag af því að Akademían hefði til­­vikið til rann­­sóknar og hefði fundað á krísu­fundi eftir há­­tíðina í gær vegna þess.

„Ég sé inni­­lega eftir hegðun minni, sem hefur sett blett á það sem hefur annars verið stór­­kost­­leg veg­­ferð fyrir okkur öll. Ég er að vinna í sjálfum mér.“