Wil­helm: Ertu að fara á eftir­laun á næstu árum? Þá bíða þín þessi ör­lög

„Þið sem eruð að fara á eftir­laun á næstu 15-20 árum bíður sömu ör­lög, nema eitt­hvað verði að gert,“ segir Wil­helm Wess­man, eftir­launa­þegi og fyrr­verandi hótel­stjóri.

Wil­helm er einn af þeim sem standa á bak við máls­sókn Gráa hersins gegn ís­lenska ríkinu. Grái herinn berst fyrir mann­sæmandi kjörum og virðingu gagn­vart eldri borgurum eins og segir á heima­síðu hans.

Wil­helm skrifar grein á Face­book þar sem hann hvetur fólk til að styðja mál­sóknar­sjóð Gráa hersins.

„Við höfum búið við tvö­falda líf­eyris­byrði. Við sem teljumst til „The baby boo­mers“ kyn­slóð eftir­stríðs­áranna erum senni­lega skatt­píndasta kyn­slóð Ís­lands­sögunar,“ segir Wil­helm en baby boo­mers-kyn­slóðin er hug­tak sem stundum er haft um þá sem fæddust á árunum 1946 til 1964.

Wil­helm segir að nú sé nóg komið og því hafi mál verið höfðað gegn ríkinu sem var dóm­tekið þann 28. apríl síðast­liðinn. Hann fer svo yfir rökin á bak við máls­sóknina.

„Í fyrsta lagi að hafa greitt ið­gjöld til líf­eyris­sjóðanna og þar með sparað til efri áranna og í öðru lagi höfum við þessir sömu eldri borgarar haldið uppi kyn­slóðinni sem átti þess ekki kost að greiða í líf­eyris­sjóði. Trygginga­stofnun ríkisins skerðir okkur í dag um allt að 56,9% af greiðslum úr líf­eyris­sjóði. Þegar einnig sé tekið til­lit til tekju­skatta sé því um að ræða í­gildi eigna­upp­töku á allt að 72,9% greiðslna frá ríkinu. Þið sem eruð að fara á eftir­laun á næstu 15-20 árum bíður sömu ör­lög, nema eitt­hvað verði að gert. Styðjið mál­sóknar­sjóð Gráa hersins og takið höndum saman við okkur sem erum á eftir­launum í dag, það er eina leiðin til að stöðva yfir­gang ríkis­valdsins.“

Wil­helm skrifar svo undir pistilinn með eftir­farandi orðum:

„Wil­helm W.G.Wess­man Baby boo­mer“