VR hefur birt Samtökum atvinnulífsins (SA) sameiginlega kröfugerð frá VR og Landssambandi íslenskra verslunarmanna (LÍV) fyrir komandi kjarasamningaviðræður, en kjarasamningur á milli VR og LÍV annars vegar og SA hins vegar rennur út þann 1. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Félögin krefjast meðal annars þess að stjórnvöld hafi aðkomu að kjarasamningum, að vinnuvika sé stytt enn frekar og að uppsagnarfrestur verði lengdur fyrir starfsmenn fyrirtækja.
„Markmið kjarasamninga er að auka lífsgæði launafólks og tryggja jafnræði á vinnumarkaði. Í kröfugerð VR og LÍV fyrir kjarasamninga 2022 er því megináhersla lögð á að auka kaupmátt ráðstöfunartekna félagsfólks og tryggja stöðugleika í efnahagslífinu til þess að verja þann ávinning sem náðist við gerð Lífskjarasamningsins árið 2019,“ segir í kröfugerð VR.
Fjögurra daga vinnuvika
Vinnuvikan var stytt úr 40 tímum niður í 36 tíma árið 2019 og segir í kröfugerðinni að styttingin hafi tekist vel og að almenn ánægja hafi verið með hana á meðal félagsfólks.
VR og LÍV vilja að vinnuvika sé stytt niður í fjóra daga, eða það sem samsvarar 32 stundum á viku. Þau vilja að það sé gert án skerðingar á launum.
„Vinnutími á Íslandi er einna lengstur af þeim löndum sem við berum okkur saman við og má sjá afleiðingarnar í fjölgun launafólks síðustu ár sem sækir þjónustu til sjúkrasjóða stéttarfélaganna,“ segir í kröfugerðinni.
Vilja fjölga frídögum
VR og LÍV gera kröfu um aukinn frítíma og meiri sveigjanleika í orlofstöku. Félögin gera þá kröfu að allt félagsfólk eigi rétt til 30 orlofsdaga á hverju ári en samkvæmt kjarasamningum er lágmarksorlof 24 dagar en allt að 30 dagar eftir tíu ár hjá sama fyrirtæki.
Þá er einnig krafist þess að orlofsréttur verði rýmkaður þannig að orlofsnýting sé allt að tvö ár í senn. „Ef ekki verður við því komið að nýta orlofið innan þess tíma, verði ónýtt orlof gert upp við starfsfólk áður en nýtt tímabil hefst,“ segir í kröfugerðinni.
Krefjast aðkomu stjórnvalda
„Aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er óhjákvæmileg,“ segir í kröfugerðinni. Þá segir að til að skila þeim ávinningi sem vonast er eftir sé nauðsynlegt að stjórnvöld komi að borðinu.
Krafist er þess að þak verði sett á leigu, ungu fólki verði auðvelduð fyrstu kaup með auknum stuðningi frá hinu opinbera og lóðaframboð verði aukið verulega með aðkomu sveitarfélaga.
„Framboð húsnæðis, hvort heldur er til eignar eða leigu, er í samræmi við eftirspurn og fáir sem geta komið sér þaki yfir höfuðið.“
Krefjast breytingu á uppsagnarrétti
„Tryggja þarf starfsfólki sem hefur langan starfsaldur hjá sama atvinnurekanda lengri uppsagnarfrest, óháð lífaldri. Réttur þessi komi fram til viðbótar þeim rétti sem nú þegar er í kjarasamningi,“ segir í kröfugerðinni.
Þau vilja að uppsagnarfrestur sé fjórir mánuðir eftir 10 ár hjá sama atvinnurekanda, fimm mánuðir eftir 15 ár hjá sama atvinnurekanda og sex mánuðir eftir 20 ár hjá sama atvinnurekanda.
Þá gera þau hins vegar kröfu um að starfsmaður geti sagt upp sínu starfi með þriggja mánaða fyrirvara.
Breyting á skilgreiningu frídaga
Einnig er krafist þess að 1. maí verði skilgreindur sem stórhátíðardagur, aðfangadagur og gamlársdagur verði stórhátíðardagur allan daginn en ekki bara frá klukkan 12.
Lesa má kröfugerð VR og LÍV í heild sinni með því að smella hér.