„Vorum með ljóðakvöld og poppuðum mjög mikið“

Óðinn Ásbjarnarson 21 árs nemi í sviðslistum við Listaháskóla Íslands og flutti á dögunum inn í þjónustuíbúðakjarna fyrir eldri borgara í Laugardalnum. Hann borgar sömu leigu og aðrir íbúar og mun verða sérstakur skemmtifulltrúi.

Hann er reyndar ekki sá fyrsti af yngri kynslóðinni sem gerir þetta, áður flutti Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir í íbúðarkjarna eldra fólks eða í fyrra og bjó á sama stað og Óðinn nú í níu mánuði.

Óðinn og Andrea mæta glaðbeitt og brosandi til Lindu Blöndal í þættum 21 í kvöld.

Mun bara banka uppá

„Ég er kominn til að efla félagslífið innan kjarnans. Það er svona hugmyndin, að fá einhvern ungan inn sem er háskólanemi til að vera annars vegar með hópastarf og líka með svona nágrannasamskipti - og líka þeir sem eru félagslega einangraðir að vera með eitthvað sér fyrir þau“, segir Óðinn og til að ná til þeirra sem eru óframfærnir muni hann kannski bara banka upp á hjá þeim og kynna sig og kannski fá kaffisopa.

Fullkomin lausn

Starfið var auglýst og þannig kom það til að Óðinn flutti í kjarnann. „Staða fyrir háskólanema og íbúð“, stóð í auglýsingunni. „Ég bara: Það er einmitt það sem ég þarf“, segir hann.

Ekki eru langir biðlistar til búsetu í íbúðakjarna eins og þessum, ekki eins og á hjúkrunarheimilum, bendir Andrera á. Því má segja að allir græði: Ungt fólk í húsnæðisvanda og íbúarnir sem mættu á meira félagslífi að halda.

Óðinn flutti inn fyrir skömmu og lenti strax í verkföllum og svo Covid faraldrinum en áformin eru ýmis konar: „Ég ætla að vera mað karóki kvöld fyrir eldri borgara og svo langar mig líka að setja upp leiksýningu með þeim og auðvitað spilakvöld og svo líka hlusta á þau og sjá hvað þau vilja gera með mér sem er það mikilvægasta“, segir hann og að námið hans í sviðslistum muni nýtast í því og þetta verði honum ekki síður gagnlegt í náminu.

Bjórsmökkun, ljóðakvöld og mikið poppað

Aðspurð segir Andrea að reynslan hafi verði mjög góð af því að flytja inn til eldri kynslóðarinnar. „Þetta gekk súper vel og enginn dagur eins og ég hélt alls konar viðburði, allt frá því að vera með bjórsmökkun og íssmökkun og svo vorum við með ljóðakvöld og poppuðum mjög mikið og ræstum ansi oft brunakerfið“, segir hún hlæjandi.

„Annars var þetta mjög mikið bara spjall. Alltaf sami hópurinn sem hittist á kvöldin frá níu til ellefu“

Heimavistarstemmning og slúður

Andrea segir að þarna sé lífið í raun bara eins og annars staðar: „Þetta var pínu heimavistarstemmning líka. Svona slúður á göngunum og þannig“.

„Ég lærði rosa mikið“, bætir hún við enda hafi hún mikinn áhuga á hagsmunamálum og hagsmunabaráttu og þarna hafi hún fengið góða innsýn inn í slæm kjör margra þeirra sem eldri eru.

Vill heyra sögurnar

Fólk í búsetukjörnum eldri borgara er fólk sem man aðra tíma, tíma horfins heims. Aðspurður hvort hann ætli að safna sögum frá sambýlingum sínum segir Óðinn: „Já algjörlega. Einmitt eins og með leiksýninguna, þá frekar en að setja upp sýninguna með hefðbundnu handriti þá væri hægt að vera með samsköpunarferli þar sem við setjum sögur okkar saman í sýningu“.