Vörður mótmælir harðlega lækkun á hámarkshraða í borginni

Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mótmælir harðlega þeim áformum borgarstjórnar Reykjavíkur, um að lækka hámarkshraða á öllum götum í umsjá borgarinnar. 

Í síðustu viku samþykkti Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar til­lögu um að hámarks­hraði á lang­flestum borg­ar­götum verði lækk­aður niður í 40 eða 30 kíló­metra hraða.

Geri illt verra

„Það mun að öllu óbreyttu ýta umferðinni frekar inn í íbúðahverfi borgarinnar, sem verður til þess að ógna umferðaröryggi allra vegfarenda,“ segir í tilkynningu frá Vörðum. Þetta hafi reynslan sýnt.

„Skýrt dæmi um þetta er frá árinu 2014, þegar borgaryfirvöld þrengdu að umferð á Hofsvallagötu.  Þetta varð til þess, að ökutækjum fjölgaði um 1.000 á sólarhring í nærliggjandi íbúðargötum og er það samkvæmt  talningu borgaryfirvalda sjálfra.“

Breytingarnar voru gerðar til að draga úr svifryksmengun en Vörður telja að hægt yrði að gera það með öðru móti. „Þrif á götum borgarinnar hafa ekki verið nægileg og það þarf að þrífa götur Reykjavíkur oftar en einu til tvisvar sinnum á ári.“ Betri snjómokstur myndi einnig draga úr notkun nagladekkja.

„Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík skorar  á borgaryfirvöld að bakka frá þessum áformum sínum og leita annarra leiða til minnka svifmengun í borginni.“