Vopnaður maður réðst að Rúrik í Mílanó: „Ég er mjög glaður með það að hafa verið dug­legur í ræktinni undan­farið“

Rúrik Gísla­son, fyrr­verandi lands­liðs­maður og sam­fé­lags­miðla­stjarn, var mættur á tísku­viku í Mílanó en hann var að ganga heim eitt kvöldið þegar vopnaður maður réðst að honum. Þetta kemur fram í frétt í Frétta­blaðsins.

„Það er gott að vera mættur aftur í ræktina eftir góða daga í Mílanó. Ég er mjög glaður með það að hafa verið dug­legur í ræktinni undan­farið,“ sagði Rúrik í færslu á Insta­gram en hann virðist nú vera staddur hér á landi.

Rúrik hafði skellt sér út á lífið í Mílanó og var á heim­leið þegar at­vikið átti sér stað. „Um miðja nótt í Mílanó þegar ég var að ganga heim af pöbbnum, þá vildi ein­stak­lingur ræna af mér úrinu. Hann var vopnaður flösku sem var brotin.“

„Hann krafðist þess að fá úrið og reyndi að ráðast á mig en ég náði að sjá um það. Farið í ræktina strákar.“

Rúrik hefur verið á­berandi eftir að hann hætti í fót­bolta fyrir tveimur árum, hann er stór­stjarna í Þýska­landi þar sem hann hefur slegið í gegn í sjón­varpi og þá hefur hann gert það gott sem spark­s­pekingur hjá Viaplay hér á landi.