Vondur pabbi dæmdur í fangelsi: Sló son sinn með plasts­löngu undir iljarnar

Héraðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt karl­mann í sex mánaða ó­skil­orðs­bundið fangelsi fyrir al­var­leg of­beldis­brot gegn fyrrum eigin­konu sinni og fjórum ungum börnum þeirra.

Maðurinn var meðal annars á­kærður fyrir að hafa, á tíma­bilinu frá janúar 2016 til mars 2020, á heimili þeirra í­trekað veist með of­beldi að einum syni sínum. Lét hann bræður piltsins halda honum föstum á meðan hann sló hann með plasts­löngu og inni­skó undir iljarnar. Fyrir dómi kom fram að pilturinn hafi átt erfitt með gang í kjölfarið. Þá var hann á­kærður fyrir að slá annan son sinn í and­litið með þeim af­leiðingum að hann hlaut blóð­nasir.

Maðurinn var einnig á­kærður fyrir líkams­á­rás gegn fyrrum eigin­konu sinni. Var hann sagður hafa tekið fast um munn hennar og slegið hana í­trekað í and­litið með flötum lófa.

Svo virðist vera sem elsti sonur hjónanna hafi fengið sig full­saddan og til­kynnt of­beldið til lög­reglu. Við könnun málsins hjá barna­vernd vaknaði grunur um að maðurinn beitti börn sín einnig harð­ræði. Rætt var við þau nokkrum sinnum og greindu þau frá of­beldi af hálfu föður síns. Sagði stúlkan að faðir hennar hefði verið „vondur“ við fjöl­skylduna, and­lit hans yrði hræði­legt þegar hann yrði reiður og hún þá hrædd við að horfa á hann. Þá sé faðirinn að reyna að taka þau börnin og hún dreymi hann á nóttinni. Fjöl­skyldan flutti til Ís­lands árið 2016 og virðist of­beldið hafa byrjað fljót­lega eftir það.

Hjónin skildu að borði og sæng á síðasta ári en í skýrslu­töku hjá lög­reglu sagði konan að hann hafi í­trekað hótað henni og hún hafi verið hrædd að láta vita af því. Þá hafi hann oft lamið börnin þegar þau hafi gert eitt­hvað sem hafi pirrað hann.

„Þá hafi á­kærði notað plasts­löngu til að lemja undir iljarnar á drengjunum og þá beðið hina drengina að halda þeim sem hann hafi verið að lemja. Ef þeir hafi neitað því hafi á­kærði hótað að lemja þá en hann hafi lamið alla drengina en beitt dóttur þeirra and­legu of­beldi.“

Manninum var í desember síðast­liðnum gert að sæta nálgunar­banni gagn­vart konunni og börnunum og gildir nálgunar­bannið til 18. mars næst­komandi.

Maðurinn neitaði sök og sagðist ekki hafa beitt börn sín of­beldi. Dómurinn taldi aftur á móti sannað að maðurinn hafi brotið gegn börnum sínum með þeim hætti sem lýst var í á­kæru. Maðurinn var einnig sak­felldur fyrir líkams­á­rás gegn fyrrum eigin­konu sinni.

Auk þess að sæta sex mánaða fangelsi var manninum gert að greiða fyrrum eigin­konu sinni 400 þúsund krónur í skaða­bætur og börnum sínum fjórum, hverju um sig, 300 þúsund krónur í skaða­bætur. Þá var honum gert að greiða laun verjanda síns, 1,4 milljónir króna og þóknun réttar­gæslu­manns, rúmar 2,3 milljónir króna.