Eigandi kattarins Fluffy hefur heitið áttatíu þúsund krónum í verðlaun fyrir hvern þann sem kemur læðunni aftur í hennar hendur.
„Elsku Fluffy mín er ennþá týnd!“ segir í ákalli í hópi hverfis 108 í Reykjavík á Facebook. Læðan hafi ekki komið heim frá því 30.júlí og hafi því verið týnd í tæpa fimm mánuði.
„Ég bið fyrir kraftaverki þessi jólin,“ segir í færslu eigandans sem býr í Gerðunum. „Ég missi ekki von um að gullið mitt komi heim á endanum, og ég þakka fyrir alla aðstoð frá kisuvinum nær og fjær!!“
Óskað er eftir því að þeir sem hafi tök á deili færslunni til að hún nái til sem flestra. „Vonandi kemst gullið mitt heim, væri besta jólagjöf sem ég gæti hugsað mér,“ segir eigandinn sem kveðst hafa skráð Fluffy sem týnda í alla gagnagrunna sem henni hafi dottið í hug.
„Það er búið að hafa samband við allar opinberar stofnanir og dýraspítala, einnig er búið að prufa öll trixin í bókinni (kisusandur, auglýsingar, labba og leita, fylgi líka eftir öllum ábendingum sem hafa komið um mögulega staðsetningu á henni en því miður ekkert komið til mín síðastu mánuði,“ segir í ákalli eiganda horfnu læðunnar.
Þannig er Fluffy lýst í Kattaskránni:
„Læða. Fædd 2018. TÝND SÍÐAN 30. JÚLÍ 2021. Útikisa. Hvít með svörtum flekkjum. Alhvít í framan. Svört ofan á kolli. Hvít haka. Hvítar loppur. Svart hægra eyra. Vinstra eyra hvítt. Hvítur magi með lambakrullum. Svart loðið skott. Fjórir svartir flekkir aftarlega á baki. Þrír litlir flekkir og einn aðeins stærri. Mjög loðin. Brún flóaól.“