Von um að komast út úr svartaþokunni

„Það var bara mjög ánægjulegt að fá svona smá sýn inn í framtíðina þetta hefur náttúrulega bara verið þoka, svört þoka framundan í margar vikur og enginn vitað hvers væri að vænta“, segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar í þættinum 21 í kvöld um væntanlegar tilslakanir gagnvart ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli. Þetta opni á þann möguleika á að það verði eitthvað um að vera í sumar hvað erlenda ferðamenn varðar.

Evrópusambandið er á sömu leið samkvæmt upplýsingum sem borist hafa Samtökum ferðaþjónustunnar: „Þetta er svo sem búið að liggja í loftinu undanfarna daga, þjóðir heims hafa náttúrulega verið að átta sig á því hvað þetta þýðir þetta svokallaða „lock down“, þessar takmarkanir allar eru bara að hafa skelfilegar afleiðingar á hagkerfi þjóða, það eru 23 milljónir manna sem vinna beint eða óbeint í ferðaþjónustu innan ríkja Evrópusambandsins“, segir Bjarnheiður.

Ríkisstjórnin kynnti í gær slökun á ferðabanni framundan. Opna á landamærin með takmörkunum í síðasta lagi 15.júní – Þá verður boðið upp á skimun á Keflavíkurflugvelli í stað þess að allir þurfi í 2ja vikna sóttkví við komu til landsins eins og hefur verið og er enn. Einnig getur fólk framvísað nýlegum vottorðum á vellinum um að það sé ekki með Covid veiruna. Evrópusambandið hefur líka tilkynnt rýmkun reglna um miðjan júní.

Um stöðu Icelandair segir hún greinina eiga gríðarlega mikið undir að til takist að koma félaginu til bjargar. Enginn muni geta tekið við nógu fljótt og nógu skilvirkt falli félagið.