Völvu­spá Brynjars fyrir árið 2023 – við­burða­ríkt ár framundan: „Gæti verið móðgandi fyrir ein­hverja“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, birtir völvu­spá sína fyrir næsta á Face­book. Hann þver­tekur þó fyrir það að hafa skrifað völvu­spánna heldur fékk hann hana senda frá konu í vestur­bænum.

„Gleði­­leg jól, kæru fés­bókar­vinir. Ég hef haft til­­­tölu­­lega hljótt um mig á fés­bókinni undan­farið. Á­­stæðan er sú að ég sæki nám­­skeið hjá Karli Th. Birgis­­syni um listina að kunna að þegja eða halda kjafti eins og hann orðar það. Þetta er nám­­skeið sem er ætlað öðrum en vinstri mönnum og er fjár­­magnað af Sam­­fylkingunni og Pírötum með peningum úr ríkis­­sjóði. Þá hafa vinstri flokkarnir boðið upp á nám­­skeið hvernig mis­fara á með skatt­­fé en láta það líta út sem mann­­gæsku. En þar sem ég er að læra listina að þegja ætla ég á næstunni að birta texta eftir aðra og byrja á völvu­spá fyrir næsta ár sem gömul kona úr vestur­bæ sendi mér og bað mig um að koma á fram­­færi,“ skrifar Brynjar.

Hún er svona orð­rétt:

„Mikið mun gerast í heimi fjöl­­miðla á nýju ári. Stundin og Kjarninn munu sam­einast til að efla rann­­sóknar­blaða­­mennsku, ekki síst til að upp­­­lýsa um kenni­­tölu­­flakk í ís­­lensku sam­­fé­lagi. Blaða­­menn munu verð­­launa hvern annan á árinu sem aldrei fyrr fyrir að upp­­­lýsa um spillingu og brot án þess að nokkuð upp­­­lýsist frekar en áður. Nokkur ólga mun verða innan fjöl­­miðla­heimsins sem mun brjótast út í miklum mót­­mælum yfir að­­för stjórn­valda gegn þeim, einkum vegna þess að ætlast er til að það gildi sömu lög og reglur um þá og aðra og svo yfir því að dregið verður úr fjár­streymni til þeirra úr vasa skatt­­greið­enda. Það endar með stórum úti­­fundi á Austur­velli þar sem lista­­menn á launa­­skrá ríkisins koma fram og Kristinn Hrafns­­son verður með uppi­­­stand á­­samt Stefáni Ingvari Vig­fús­­syni. Þá mun fram­­kvæmda­­stjóri Tran­s­paren­cy International flytja erindi á fundinum um muninn á góðri spillingu og vondri spillingu.“


„Í heimi stjórn­­mála munu ráð­herrar keppast við að greiða bætur úr ríkis­­sjóði. Mér sýnist dóms­­mála­ráð­herra ætla að greiða af­kom­endum Agnesar og Frið­riks í beinan legg töl­verða fjár­hæð enda það mál hvílt mjög á lands­­mönnum, ekki síst Hún­vetningum, en dóms­­mála­ráð­herra var einu sinni sauð­fjár­bóndi á Barkar­­stöðum í Hún­vatns­sýslu og á þar sterkar rætur. Þá mun barna­­mála­ráð­herra leggja til að ung­börnum sem látin voru sofa úti í barna­­vagni hjá dag­­mömmum, oft grátandi, verði greiddar bætur. Einnig börnum sem voru á árum áður í beisli bundin við girðinguna í garðinum, og munu það vera nánast allir lands­­menn sem komnir eru yfir sex­­tugt,“ skrifar Brynjar.

„Það verða tals­verðar breytingar á þinginu. Ein­hver Pírati mun flytja til Írans, jafn­vel fleiri en einn, á­­samt mörgum femin­istum, sem telja staða kvenna sé betri þar en hér á landi, bæði hvað varðar borgar­­leg réttindi og klæða­burð. Þá mun Pírati, sem hefur verið á­berandi á al­­þjóð­­legum vett­vangi, en enginn hlustar á, halda nám­­skeið um pólitíska á­byrgð og hvernig sú á­byrgð tengist siða­­reglum eða ekki. Ein­hver hringlandi verður á ráð­herra­liðinu og mér sýnist að þeir verði látnir taka pokann sinn sem eitt­hvert gagn hafa gert. Ein­hver að­­stoðar­­maður ráð­herra mun skandalísera á árinu og verður látinn fara. Sé ekki alveg hver það er en hann er karl­kyns og hefur ekki út­litið með sér,“ skrifar Brynjar.

„Á­standið í Reykja­víkur­­borg mun batna mikið þegar líður á árið. Það mun hætta að snjóa í sumar þegar þjónustu­hand­bækurnar verða loksins upp­­­færðar eftir þrot­­lausa vinnu margra starfs­hópa. Jafn­­framt mun draga úr lofts­lagskvíða meiri­hlutans í borginni og orðið ham­fara­hlýnun mun heyrast sjaldnar. Ég sé að borgin ætlar að taka á fjár­hags­vandanum með því að syngja á fundum borgar­­stjórnar og halda geð­­sjúkum heima hjá sér. Þess á milli ætlar meiri­hlutinn í borginni að skála í kampa­víni saman á Kjarvals­­stofu til að fagna því hversu æðis­­leg þau eru."

„Mikil­­vægustu ríkis­­fyrir­­­tækin, ÁTVR og RÚV, munu eiga erfitt upp­­­dráttar á nýju ári. Á endanum nennir enginn að hlusta á sama fólkið í Vikunni hjá Gísla Marteini upp­­hefja sjálfan sig og tala illa um aðra og enda­­lausar fréttir frá frétta­­stofunni um ham­fara­hlýnun, kyn­­segin fólk og mann­vonsku sem fylgir hval­veiðum. Þá mun RÚV af­­leggja allar siða­­reglur um starfs­­menn sína sem og aðrar reglur enda al­manna­út­­varp í al­manna­eigu. Enn erfiðara verður árið fyrir ÁTVR. Lands­­menn eru komnir á þann stað að vilja kaupa á­­fengi annars staðar en í verslunum ÁTVR eins og þeir vildu á sínum tíma kaupa mjólkur­vörur í öðrum búðum en mjólkur­búðum. Mér sýnist samt ÁTVR lifa árið af og jafn­vel lengur ef fram­­sóknar­­menn í öllum flokkum verða svona margir á­­fram.”

„Svona mörg voru orð völvunnar. Hún hefur reynst sann­­spá í gegnum tíðina. Hefur til að mynda spáð jarð­hræringum og eld­­gosum á Ís­landi, sem hefur heldur betur reynst rétt. Ekki á hvers manns færi að sjá það fyrir. Ég sleppti að vísu úr spánni því sem gæti verið móðgandi fyrir ein­hverja. Það er nefni­­lega kennt á nám­­skeiðinu um listina að þegja að rit­­stýra og þagga niður allt ó­­þægi­­legt. Það er kennt í kaflanum um hatur­s­orð­ræðu en það hug­­tak var fundið upp á gamla Þjóð­viljanum,“ skrifar Brynjar að lokum