Í áramótablaði Fréttablaðsins sem kom út á gamlársdag birtist völvuspá fyrir árið 2023.
Óhætt er að segja að þar kenni ýmissa grasa og telur völvan meðal annars að náttúran muni minna á sig með látum eins og henni er von og vísa. Eldgos, snjóflóð, alvöru vetrarveður en líka hitamet í sumar munu vekja athygli. Hér að neðan birtist brot úr spánni þar sem fjallað er um veðrið og hugsanlegar náttúruhamfarir.
Náttúran leikur við hvurn sinn fingur á nýja árinu svo landslýð mun sem oft áður þykja nóg um. Fyrir utan stórhríðarveður og frosthörkur munu ósköpin fyrst byrja fyrir alvöru með snjóflóði á Austfjörðum sem varnargarðar munu þó naumlega beina fram hjá byggðinni fyrir neðan og íbúum þar.
Reykjanesskaginn hefur ekki sungið sitt síðasta og náttúruöflin rumska þar að nýju með vorinu. Skjálftavirknin virðist í fyrstu benda til þess að umbrotin færist nær höfuðborgarsvæðinu en á endanum hættir jörð að skjálfa – um sinn.
Óvæntustu tíðindin úr náttúrunni varða þó veðráttuna í sumar. Eftir afburða milt vor eiga landsmenn ekki von á góðu og búa sig undir svalt sumar en annað verður upp á teningnum og búast má við að hitamet falli víða í júlí, til dæmis í uppsveitum sunnanlands og vestan. Þótt stutt rigningarskeið verði bæði í júní og ágúst mun sólin að mestu ráða ríkjum og suðrænir vindar ylja fram undir haust.
Veðurblíðan mun þó koma hressilega í bakið á borgarstjórn Reykjavíkur sem bókfærir fyrirsjáanlegan sparnað í snjómokstri snarlega sem hagnað. Ísland mun þó að sjálfsögðu koma bæði innfæddum og erlendu ferðafólki á óvart með því að standa undir nafni í vetur sem verður miklum mun snjóþyngri en árin á undan.
Samgöngur í borginni fara í algera steik enda hvorki mannskapur né tæki tiltæk til þess að mæta fannferginu. Alexandra Briem setur í snatri fram stýrihóp til þess að fara yfir hvað klikkaði og eftir tveggja mánaða þrotlausa vinnu finnst fundargerð sérstaks stýrihóps sem var kallaður saman í desember 2022 og í ljós kemur að ekkert hefur verið unnið í málaflokknum síðastliðið ár þar sem sá hópur náði aldrei að funda vegna ófærðar.
Eldgos sem hefst í Bárðarbungu með stuttum fyrirvara í sumarlok yfirskyggir þó öll önnur tíðindi af náttúrunni og uppátækjum hennar. Tvísýnt verður um hóp erlendra jarðvísindamanna og íslenskan fylgdarmann þeirra sem verða innlyksa norðan jökuls.