Völdu ekki bestu tækni­lausnina og fá að­stoð frá al­manna­tenglum

Besta tæknin var ekki valin vegna nýrrar gas- og jarð­gerðar­stöðvar Sorpu sem kostað hefur 5,3 milljarða króna. Í um­fjöllun nýjasta tölu­blaðs Stundarinnar kemur fram að svo virðist vera sem ó­dýrasta tæknin hafi orðið fyrir valinu.

Stundin heldur á­fram að fjalla um mál­efni Sorpu og vísar meðal annars í úr­skurði kæru­nefndar út­boðs­mála. Í úr­skurði frá árinu 2016 kemur fram að tækni Aikan, sem varð hlut­skarpast í út­boði um stöðina, hafi fengið 62,5 stig við mat á tækni­legum eigin­leikum. Önnur stöð, frá þýska fyrir­tækinu BTA, fékk 86,5 stig. Tækni Aikan var hins vegar miklu ó­dýrari; hljóðaði til­boð þeirra upp á 13,3 milljónir evra en til­boð þýska fyrir­tækisins 46,5 milljónum evra.

Síðar kom í ljós að villa var í til­boði Aikan á þá leið að til­boðið til­greindi einungis rekstrar­kostnað fyrir vél­búnað og byggingar í eitt ár en ekki fimm­tán eins og kveðið var á um í útboðinu. Úr varð að Aikan breytti til­boði sínu sem varð 24,3 milljónir evra.

Í um­fjöllun Stundarinnar kemur enn fremur fram að Sorpa hafi fengið ráð­gjöf frá al­manna­tengla­fyrir­tækinu At­hygli vegna um­ræðu um fram­kvæmdirnar. Kol­beinn Marteins­son, fram­kvæmda­stjóri At­hygli, vildi ekki svara því hvort fyrir­tækið vinni fyrir Sorpu og þá segir Stundin að Helgi Þór Inga­son, fram­kvæmda­stjóri Sorpu, hafi ekki svarað fyrir­spurn um málið.

Tals­vert hefur verið fjallað um mál­efni stöðvarinnar og þá einna helst kostnað við stöðina sem var verulega van­á­ætlaður. Gerðu á­ætlanir ráð fyrir 3,7 milljarða kostnaði en kostnaðurinn er nú kominn vel yfir 5 milljarða króna.