Vítalía leggur fram kæru

Vítalía Lazareva hefur lagt fram kæru vegna kynferðisbrots. Hún greinir frá þessu sjálf á Twitter síðu sinni í morgun.

Mál Vítalíu vakti mikla athygli í upphafi ársins. Hún greindi frá sambandi sínu við giftan mann og ofbeldi sem hún varð fyrir. Vítalía ræddi málið meðal annars í helgarblaði Fréttablaðsins. Mennirnir sem um ræðir í máli Vítalíu eru þeir Arnar Grant, sem hún átti í sambandi við, og svo Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson. Logi Bergmann blandaðist svo í málið með öðrum hætti. Allir þessi menn hafa annað hvort stigið sjálfir til hliðar eða verið sagt upp.

Vítalía varð þekkt á einni nóttu eftir viðtalið og var einlæg með þau áhrif sem það hafði á sig í samtali við Fréttablaðið. „Á tíma­bili fannst mér ég svo heppin að eiga hann og svo heppin að ég fengi að koma með á æfingu eða í ein­hverja sumar­bú­staðar­ferð. Þarna sá ég ekki hlutina skýrt og áttaði mig ekki á því að ég gæti bara gert það sem ég vil með þeim sem ég vil og að það væri til fullt af fólki sem vildi vera með mér án þess að lítil­lækka mig,“ út­skýrði Víta­lía.

„Stór dagur í dag fyrir mig og vonandi fyrir betra samfélag,“ skrifar Vítalía á Twitter.