Vítalía kallar á hjálp: Segir Sigurð G. hafa tekið mynd af sér úti á götu og birt á Facebook

Vítalía Lazareva, sem steig fram í hlaðvarpi Eddu Falak á dögunum og lýsti kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir af hendi þjóðþekktra manna, kallaði eftir hjálp á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.

„Það er ekkert spes að lögfræðingur sem ég þekki ekki baun í bala taki mynd af mér þegar ég er að labba inn á fund að hitta minn lögmann .... Það sem er ennþá meira spes er að hann póstar myndinni á Facebookið sitt. HJÁLP,“ segir hún.

Ef marka má myndina sem Vítalía birti var það lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson sem tók myndina þann 8. desember síðastliðinn og birti í Facebook Story hjá sér. Þar má sjá Vítalíu á gangi á Suðurlandsbraut á leiðinni að hitta sinn eigin lögfræðing.

Sigurður G. hefur verið nokkuð áberandi í umræðunni upp á síðkastið og gagnrýnt harðlega þær aðferðir sem samtök á borð við Öfgar beita í baráttu sinni gegn kynferðisofbeldi.

Færsla Vítalíu á Twitter hefur vakið mikla athygli og eru margir sem fordæma lögmanninn. „Þetta er eingöngu gert til þess að hræða þig! Núna þarftu að vera sterk, hugrökk og mæta þessum vondu mönnum,“ segir í einu svari við færslu Vítalíu.