Vítalía Lazareva, sem steig fram á dögunum og lýsti sambandi sínu við giftan mann og ofbeldi sem hún varð fyrir, hyggst flytja til Ítalíu í sumar.
Þetta kom fram í viðtali við Vítalíu í helgarblaði Fréttablaðsins.
„Upphaflega stóð ekki til að vera hérna svona lengi en mömmu og pabba leið vel svo við erum hér enn,“ segir Vítalía meðal annars í viðtalinu en faðir hennar, sem spilaði handbolta með rússneska landsliðinu, hóf að spila hér á landi.
Í viðtalinu kemur fram að Vítalía hafi ferðast um Ítalíu í þrjár vikur síðasta sumar. Í Napólí fór hún á námskeið þar sem hún lærði að gera pítsu og tíramísu frá grunni. Móðir hennar er kokkur og hún er vön matargerð sem unnin er frá grunni, sem og því að prufa nýja hluti þegar kemur að mat. Vítalía stundar nám í matvælafræði við Háskóla Íslands og nýtur þess einnig sjálf að elda mat, líkt og sjá má á Instagram-reikningi hennar.
Með kokkinum sem sá um námskeiðið og Vítalíu myndaðist vinátta og næsta sumri hyggst hún verja á Ítalíu.
„Ég vingaðist við þennan mann og mig hefur alltaf langað að vinna á veitingastað og það ætla ég að gera í sumar, vera á Ítalíu og vinna á veitingastaðnum hans,“ segir Vítalía í viðtalinu. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á mat og næringu og líklega hvergi betra að vera en á Ítalíu þegar matur er annars vegar.