Vítalía búin að pakka niður? „Lygarnar halda áfram“

Vítalía Lazareva birti mynd í Instagram Story hjá sér fyrr í dag sem fylgjendur hennar hafa furðað sig á. Fjölmiðlar greindu frá því um helgina að Vítalía og Arnar væru flutt saman inn í íbúð í Garðabænum. Þá hefði sést til þeirra á opinberum stöðum líkt og Hagkaup.

„Taka pokana og hypja sig út. Lygarnar halda áfram,“ sagði Vítalía og birti mynd úr forstofu íbúðar þar sem má meðal annars sjá nokkra fulla poka á gólfinu. Engar frekari upplýsingar fylgja með myndinni sem Vítalía birti.

Samband hennar og Arnars hefur verið talsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum eftir að Vítalía steig fram í viðtali hjá Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í janúar á þessu ári.

Vítalía greindi þar frá sambandi sem hún hafðí átt við giftan mann, Arnar Grant, og sakaði þrjá menn um kynferðibrot í sumarbústaðarferð í Skorradal sem hún hafði farið í með Arnari.

Þremenningarnir Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson hafa sakað Vítalíu og Arnar um tilraun fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs, sem Arnar hefur alfarið neitað fyrir.