Vist­maður sótt­kvíar­hótels fær út­reið í kommenta­kerfinu: „Treglæs sótt­varnar­skrímsl mætt með heyk­víslarnar“

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri VG, dvelur nú á sóttkvíarhóteli eftir að hafa komið til landsins frá Svíþjóð. Hún heldur úti daglegum dagbókarfærslum á Facebook þar sem hún segir frá dvöl sinni á hótelinu á skemmtilegan hátt.

Hringbraut fjallaði um fyrstu færslu Bjargar fyrir tveimur dögum en svo virðist sem skrif hennar hafi farið vitlaust ofan í einhverja ef marka má komment við Facebook-deilingu Hringbrautar á fréttinni. Einhverjir hafa kannski misskilið háðsleg skrif Bjargar.

Hún ræddi þetta í annarri dagbókarfærslu sinni í gær: „Dagurinn hófst með umtalsverðum áhyggjum af kaffileysi á herberginu, þar sem aðeins var eftir coffeinlaust, sem hindrar ekki fráhvarfshausverk. En áður en ég náði að rífa mig upp í frekjukast til að redda því, fóru skrílslætin í kommentakerfi Hringbrautar, að dynja á mér kaffilausri.“

Hún heldur áfram: „Þar voru treglæs sóttvarnarskrímsl mætt með heykvíslarnar til þess að stinga á hol forréttindafrekjuna sem finnur ekki til þakklætis, gefur skít í covidþjáningar og fyrirlítur fólk í geimbúningum. Allt út af fb færslunni Dagur eitt. Svo reið voru kommentaskrímslin að ég er dauðfegin að vera lokuð inni. Annaðhvort sæki ég um framlengingu á sóttkvínni eða fæ lánaðan geimverubúning til að komast óséð heim. En loforði um daglegar skýrslur úr einangrunarvistinni klikka ég ekki á.“

Hún segir daginn hafa liðið hratt á hótelinu og með hjálp fjarfundatækninnar hafi henni tekist að mæta á fimm fundi og hitta samtals um 30 manns, skrifað slatta af póstum og náð einhverjum tugum símtala á meðan hún þrammaði um herbergið – samtals 1,4 kílómetra yfir daginn.

Hún hélt hún fengi svo loks kaffið sitt þegar vinkona hennar var svo góð að koma með það í afgreiðslu hótelsins til starfsfólks sem síðan átti að færa henni það upp á herbergi. Það fór reyndar á vitlaust herbergi: „Ég trúi því að sá sem þar var fyrir hafi glaðst, sjálf fékk ég í sárabót gevalíastauta sem duga fram á sunnudagskvöld, miðað við sjö bolla regluna.“

Dagur 2 á sóttkvíarhóteli. (Ekki fyrir viðkvæma.) Dagurinn hófst með umtalsverðum áhyggjum af kaffileysi á herberginu,...

Posted by Björg Eva Erlendsdóttir on Friday, 23 April 2021