Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstaklinga á hóteli í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi sem virtu ekki reglur um sóttkví. Tilkynningin barst á níunda tímanum í gærkvöldi og var skýrsla rituð um málið, að sögn lögreglu.
Frekari upplýsingar koma ekki fram í skeyti lögreglu, en eins og greint var frá í gær greindust þrettán innanlandssmit hér á landi á laugardag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í fréttum RÚV í gær að vísbendingar væru um að faraldurinn væri á uppleið á ný.
Af þeim þrettán sem greindust voru fimm utan sóttkvíar. Þetta er nokkuð mikill fjöldi enda yfirleitt tekin færri sýni um helgar en á virkum dögum.
„Það eru flestir sem fara eftir leiðbeiningum þá er alltaf einhver sem gerir það ekki og heldur þessu gangandi þannig,“ sagði Þórólfur í fréttum RÚV í gær.