Vinur Sigmundar missti andlitið: Gatarinn átta sinnum dýrari á Íslandi

„Íslendingar hafa löngum látið okra á sér. Og það er vegna þess að þeir hafa ekki samanburðinn í huganum. Þeir umreikna kaup sín ekki í evrur,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins, í leiðara blaðsins í dag.

Sigmundur segir þar frá vini sínum sem þurfti að kaupa sér nýjan gatara á dögunum, en sá gamli hafði gefið sig eftir áralanga þjónustu.

Það er skemmst frá því að segja að vinur hans snaraði sér út í næstu bókabúð og spurði afgreiðslumanninn hvort hann lumaði ekki á venjulegum gatara.

„Og það stóð ekki á svari, en umrædda græju af Leitz-gerð væri að finna í skrifstofudeildinni, en hana væri að finna á hæðinni fyrir neðan. Og þar leyndust einmitt nokkrir gatarar af Leitz-gerðinni, pakkaðir inn í veglegan kassa – og án þess að líta á verðmiðann hélt okkar maður með einn þeirra að afgreiðslukassanum, umhugsunarlaust.“

Sigmundur Ernir segir að á þessu augnabliki hafi vinurinn vaknað af sjálfstýringu hversdagsins – þurfti hann að reiða fram tæpar 10 þúsund krónur fyrir gatarann, eða nákvæmlega 9.949 krónur. Fékk hann þó fimm prósenta afslátt sakir vildarvinakjara.

Sigmundur segir að viðskiptavinurinn hafi gengið þungur til höfuðsins út úr búðinni með nýja gatarann í poka. Þar sem hann hafði dvalist í Frakklandi um árabil sakir vinnu sinnar fór hann að umreikna íslenska verðið í evrur.

„Og gat þetta verið, hugsaði hann, litlu léttari til höfuðsins, að gatari á Íslandi kostaði sem næmi 66 evrum? Það væru bæði ósköp og ósvífni, því varla gæti gatari af almennasta tagi talist til flóknustu og þróuðustu tækniundra samtímans, að okkar maður hélt.“

Vinurinn leitaði upp gataraverð í Frakklandi og það tók ekki langan tíma fyrir hann að komast að því að sama tæki í franskri bókabúð kostaði átta evrur.

„Segir ekki meira af okkar manni að öðru leyti en því að hann skammast sín og hefur verið með böggum hildar frá því hann festi kaup á þessum gatara, eða öllu heldur, fjárfesti í honum, á áttfalt hærra verði en í Frans. Íslendingar hafa löngum látið okra á sér. Og það er vegna þess að þeir hafa ekki samanburðinn í huganum. Þeir umreikna kaup sín ekki í evrur. En láta sig hafa það. Árum og áratugum saman.“