Vinur Freyju syrgir ein­staka vin­konu: „Hún var alltaf til staðar“

„Við ætlum að koma saman í kvöld og kveikja á kertum fyrir hana,“ segir Stef­fen Peter­sen, góður vinur Freyju Egils­dóttur sem fannst látin í Dan­mörku í morgun, í sam­tali við vef Frétta­blaðsins.

Fyrr­verandi sam­býlis­maður Freyju, 51 árs Dani, hefur verið hand­tekinn grunaður um að hafa orðið henni að bana. Að því er fram kom í fréttum danskra fjöl­miðla í morgun hefur hann játað sök.

Stef­fen og Freyja kynntust í SOSU Østjylland-skólanum fyrir þremur árum en skólinn undir­býr nem­endur fyrir störf í fé­lags- og heil­brigðis­þjónustu. Bekkjar­fé­lagarnir voru nánir og segir Stef­fen að Freyja hafi alltaf verið til staðar þegar á þurfti að halda og sett sína nánustu í fyrsta sætið. Hittust bekkjar­fé­lagarnir oft utan skóla og gerðu sér daga­mun.

Stef­fen segir í sam­tali við Frétta­blaðið að þrír úr bekknum hennar hafi tekið þátt í leitinni að Freyju í gær eftir að lýst var eftir henni. „Í morgun komu svo þessar skelfi­legu fréttir um það sem gerðist,“ segir Stef­fen sem minnist góðrar og glað­lyndrar vin­konu sem var á­vallt til­búinn að leggja fram sína að­stoð.

Ætla bekkjarfélagarnir sem fyrr segir að koma saman og kveikja á kertum.

Frétt Fréttablaðsins.