Hópur fjárfesta og tveggja fyrrverandi stjórnenda hjá WOW air vinnur um þessar mundir að stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags á grunni WOW, sem varð gjaldþrota undir lok mars á þessu ári. Hið nýstofnaða flugfélag nefnist WAB air. Hópurinn hefur óskað eftir láni upp á tæplega fjóra milljarða króna hjá að minnsta kosti tveimur íslenskum bönkum. Frá þessu er greint í Markaðnum í dag.
Hópurinn er í samfloti við írskan fjárfestingarsjóð að nafni Avianta Capital, sem er að fullu í eigu dóttur eins af stofnendum Ryanair. Hún heitir Aislinn Whittley-Ryan og hefur sjóðurinn skuldbundið sig til þess að leggja WAB air til rúma fimm milljarða króna í nýtt hlutafé, með það fyrir augum að tryggja grundvöll rekstrar félagsins til þriggja ára.
Fái hópurinn fyrirgreiðslu hjá íslenskum banka hyggst hópurinn nýta sér lánsféð sem eigið fé til þess að fá lán hjá svissneskum banka. Áætlað er að Avianta Capital eignist 75 prósenta hlut í WAB air sem endurgjald fyrir fjárfestingu sína, á móti 25 prósenta hlut félagsins Neo.
Neo er í eigu Arnars Más Magnússonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs WOW air, Sveins Inga Steinþórssonar, fyrrverandi stjórnanda hagdeildar WOW air sem sat í framkvæmdastjórn flugfélagsins, Boga Guðmundssonar, lögmanns hjá Atlantik Legal Services og stjórnarformanns BusTravel, og Þórodds Ara Þóroddssonar sem hefur starfað sem ráðgjafi í flugvélaviðskiptum í Lundúnum.
Sex vélar og fjórtán áfangastaðir
Áætlanir hópsins miða að því að WAB air hefji rekstur í haust og verði með sex vélar í rekstri sínum fyrsta árið. Stefnt er að því að fljúga til fjórtán áfangastaða í Evrópu og Ameríku.
Áætlanirnar gera einnig ráð fyrir að ein milljón farþega verði flutt með félaginu á næsta ári og að fimm hundruð starfsmenn verði ráðnir til þess á næstu tólf mánuðum. Þá verði velta félagsins um tuttugu milljarðar króna á næsta ári.
Undirbúningur fyrir umsókn að flugrekstrarleyfi er langt á veg komin og mun félagið leggja áherslu á „lágan kostnað, samkeppnishæf verð, afbragðsþjónustu og mikið fjör fyrir sína starfsmenn og viðskiptavini,“ líkt og kemur fram í minnisblaði sem Markaðurinn hefur undir höndum, þar sem lánsbeiðnin er útlistuð ítarlega.